Spjallkaffi 60+ á Kjarvalsstöðum

Næsti fundur 60+ er síðasti fundur vetrarins. Af því tilefni þá gerum við okkur dagamun. Við ætlum að hittast á Kjarvalsstöðum, fá leiðsögn um sýningarnar sem eru þar og eftir það að setjast niður og fá okkur kaffi og köku með því.
Við hittumst kl. 10 að vanda, fáum leiðsögn um sýningarnar og setjumst svo í kaffiteríuna um kl. 11. Leiðsögnin, kaffi og meðlæti er í boði 60+, hins vegar þurfa gestir sem ekki eiga menningarkort borgarinnar að greiða aðgöngugjald kr. 2.550, eða ef 67+ er að kaupa menningarkort borgarinnar á kr. 2.550.
Miðvikudaginn 27. maí
Kl. 10:00–12:00
Kjarvalsstaðir
Öll hjartanlega velkomin!