Þingkona í Þolló býður í stelpupartý

Þingkonan okkar, Ása Berglind býður í alvöru stelpupartý þar sem hún sýnir sína bestu takta í kokteilgerð.
Frambjóðendur á listanum (kvk) verða á staðnum tilbúnar að detta í trúnó og ef andinn kemur yfir okkur þá tökum við lagið með eina karlinum sem fær að vera með, Tomma Jóns.
Bæjarstjóraefnið okkar Bryndís Gunnlaugsdóttir verður að sjálfsögðu á staðnum og því kjörið tækifæri til að kynnast henni.
Barinn verður klár um átta leitið og allar konur velkomnar