Iðnó, Vonarstræti 3

Verkalýðskaffi Samfylkingarfélagsins í Reykjavík

Samfylkingarfélagið í Reykjavík býður í verkalýðskaffi föstudaginn 1. maí í Iðnó.

Húsið opnar kl. 14.30 og hefst dagskrá kl. 15:00.

Dagskrá

·         Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingar

·         Kári Sigurðsson, formaður Sameykis

·         Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur

·         Pétur H. Marteinsson, oddviti Samfylkingar í Reykjavík

Fundarstjóri er Isabel Alejandra Díaz sem skipar 9. sæti listans í Reykjavík

Tónlistarmaðurinn KK kemur okkur í vorskap með ljúfum tónum.

Boðið verður upp á kaffi og kleinur og djús og ávexti fyrir börnin.

Öll velkomin að njóta með okkur samveru og spjalls.