Dagbjört og Katrín spjalla um Evrópumálin

Nú er orðið ljóst að þjóðaratkvæðagreiðslan um viðræður við Evrópusambandið verður haldin í ágústlok ‒ eftir aðeins þrjá mánuði. Við höldum ótrauð áfram Evrópuspjallinu.
Þær Dagbjört Hákonardóttir alþingismaður og Katrín Júlíusdóttur, fyrrverandi þingmaður og nú formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, verða málshefjendur á Evrópufundi hjá Samfylkingunni í Reykjavík núna á miðvikudaginn. Við ræðum einkum um verkefnin framundan, um stöðuna eftir afgreiðslu málsins í þinginu, og hlutverk okkar í flokknum fyrir atkvæðagreiðsluna.
Allir félagar velkomnir ‒ og takið með ykkur gesti!
Evrópuhópur SffR