Strandagata 43 - Hafnarfirði

Félagsfundur málefnanefndar um stjórnarfar og mannréttindi

Málefnahópur Samfylkingarinnar um stjórnarfar og mannréttindi boðar til opins félagsfundar um nýsamþykkt lög um brottfararstöð og afstöðu Samfylkingarinnar til þeirra.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, Strandgötu 43, miðvikudaginn 24. júní kl. 20:00.

Víðir Reynisson þingmaður mun fara yfir efni frumvarpsins og meðferð þess á Alþingi.

Markmið fundarins er að skapa vettvang fyrir upplýsingar, samtal og skoðanaskipti meðal félagsfólks.

Unnið er að því að kanna möguleika á þátttöku í gegnum fjarfundabúnað. Nánari upplýsingar um það verða sendar um leið og þær liggja fyrir.

Hlökkum til að sjá ykkur.