Kristrún á Patreksfirði: Hlustunarfundur um hagsmuni Íslands

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra heldur hlustunarfundi um hagsmuni Íslands vítt um land í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Verið hjartanlega velkomin á súpufund með Kristrúnu í Verbúðinni á Patreksfirði kl. 12:00 þriðjudaginn 18. ágúst.
Forsætisráðherra vill hlusta á ólík sjónarmið og bjóða upp á heiðarlegt samtal um hagsmuni Íslands.
Hvar sérð þú tækifæri fyrir Ísland? Hvað veldur þér áhyggjum? Hvernig vilt þú að unnið verði með niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst?
Þjóðin hefur orðið.