Brún Bæjarsveit

Kristrún í Borgarfirði: Hlustunarfundur um hagsmuni Íslands

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra heldur hlustunarfundi um hagsmuni Íslands vítt um land í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Verið hjartanlega velkomin í kvöldspjall með Kristrúnu í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit í Borgarfirði kl. 20:00 þriðjudaginn 18. ágúst.

Forsætisráðherra vill hlusta á ólík sjónarmið og bjóða upp á heiðarlegt samtal um hagsmuni Íslands.

Hvar sérð þú tækifæri fyrir Ísland? Hvað veldur þér áhyggjum? Hvernig vilt þú að unnið verði með niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst?

Þjóðin hefur orðið.