Atvinna, kjör og húsnæði - hvað er framundan?

Opinn fundur með Eydísi Ásbjörnsdóttur og Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, þingmönnum Samfylkingarinnar.
Hvernig horfa efnahagsmálin við okkur? Hvað er fram undan í atvinnulífinu, hvernig tryggjum við bætt lífskjör og hvað þarf að gera til að auðvelda fólki að koma sér þaki yfir höfuðið?
Samfylkingin og annað félagshyggjufólk í Fjarðabyggð bjóða til opins fundar í Eskifjarðarskóla mánudaginn 26. október kl. 20:00 þar sem við ræðum atvinnuuppbyggingu, efnahagsmál, kjör heimilanna og húsnæðismál.
Eydís og Kristján Þórður sitja bæði í atvinnuveganefnd Alþingis og Kristján Þórður hefur jafnframt víðtæka reynslu af verkalýðs- og kjaramálum.
Þingmennirnir fara yfir stöðu mála og það sem fram undan er, en góður tími verður einnig gefinn fyrir spurningar og opnar umræður.