– Hömrum

Bæjarmálafundur á Ísafirði

Sveitarstjórnarfulltrúar í Ísafjarðarbæ boða til bæjarmálafundar 20. október kl. 20:00 í Hömrum.

Farið verður yfir helstu verkefni sem eru í vinnslu þessa stundina og fram undan. Jafnframt viljum við hefja samtal við félaga um fjárhagsáætlun næsta árs og heyra hvaða áherslur þið viljið sjá í þeirri vinnu.

Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta. Fundurinn er mikilvægt tækifæri fyrir okkur til að heyra sjónarmið baklandsins áður en vinnan við fjárhagsáætlunina fer lengra.

Dagskrá:

• Kl. 20:00–20:30: Óformlegt samtal við Gylfa bæjarstjóra um mál sem eru á döfinni. Þar gefst gott tækifæri til að spyrja spurninga, koma með hugmyndir og ræða beint við bæjarstjórann.

• Yfirferð yfir verkefni sem eru í vinnslu og þau mál sem við erum að undirbúa.

• Umræður um tillögur sem hafa komið fram í nefndum og þær áherslur sem við viljum leggja inn í fjárhagsáætlun næsta árs.

• Opnar umræður, spurningar og næstu skref.

Það skiptir okkur máli að fá sem flest sjónarmið inn í umræðuna og því vonumst við til að sjá sem flesta félaga á fundinum.

Hlökkum til að sjá ykkur og eiga gott samtal!