Samkomuhúsinu í Sandgerði

Flokksstjórnarfundur

Flokksstjórnarfundur verður haldinn í Samkomuhúsinu í Sandgerði laugardaginn 10. október.

Boðið er upp á rútuferð frá Reykjavík kl. 11:00 frá bílastæðinu við Hús verslunarinnar. Rútan mun keyra beint til Sandgerðis og heim seinna um kvöldið eftir skemmtun og mat. Þú getur skráð þig í rútuna um leið og þú skráir þig á fundinn.

Kaffi- og fundargjald er 4.000 og 3.000 fyrir námsmenn, lífeyrisþega og fólk á fjárhagsaðstoð. Greiðist inn á bk. 0111 hb. 26 rknr. 19928 - kt. 690199-2899. Innifalið er hádegishressing, kaffi, te og síðdegishressing.

Helstu tímasetningar
11:00 - Lagt af stað frá Reykjavík með rútu
12:00 - Húsið opnar, skráning og hádegismatur
12:30 - Fundur settur
14:30 - Kaffihlé - veitingar frá kvenfélaginu Gefn
17:00 - Fundi slitið
17:00 - 23:00 - Gleðistund, kvöldmatur og skemmtiatriði 
23:00 - Rúta til Reykjavíkur 

Skráning hér: https://forms.gle/a4sWfzLX24G6DqNY6

Veisluhöld! 
Um kvöldið verður boðið upp á veitingar og skemmtun í anda Októberfest. Hobbitarnir frá Suðurnesjum, þeir Óli og Hlynur, munu taka lagið og skemmta gestum. 

Kvöldverður og skemmtun kostar 7.000 og 6.000 fyrir námsmenn, lífeyrisþega og fólk á fjárhagsaðstoð greiðist inn á bk. 0111 hb. 26 rknr. 19928 - kt. 690199-2899.

Mikilvægar dagsetningar fram að fundi

25. september: Ályktunartillögur sem aðrir flytja en stjórn eða framkvæmdastjórn, skulu hafa borist a.m.k. tveimur vikum fyrir boðaðan fund. 

10. október: Flokksstjórnarfundur verður haldinn í Suðurnesjabæ.