– Strandgata 43 - Hafnarfjörður

Framtíð umhverfis- og loftslagsmála á Íslandi

Málefnanefnd Samfylkingarinnar um umhverfismál býður til opins fundar um framtíð umhverfis- og loftslagsmála á Strandgötu 43 í Hafnarfirði miðvikudaginn 28. október kl. 20:00.

Frummælendur eru:

Andri Snær Magnason
Laura Sólveig Lefort Scheefer fyrir unga umhverfissinna
Stefán Jón Hafstein fyrir Aldin gegn loftslagsvá
Halldór Þorgeirsson, formaður loftslagsráðs
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra

Eftir erindi verða opnar umræður.

Á komandi vikum er málefnanefnd Samfylkingarinnar um umhverfismál að hefja endurskoðun á stefnu málaflokksins í aðdraganda landsfundar sem verður á vormánuðum. Við hvetjum áhugasama félaga að taka þátt í vinnunni.

Umsjón með nefndarvinnu umhverfishópsins er í höndum Eyrúnar Fríðu Árnadóttur, formanns og Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur þingkonu.