– Hallveigarstígur 1

Opinn fundur með borgarfulltrúum

Frá því að nýr meirihluti tók við stjórn Reykjavíkurborgar hafa breytingar á borgarrekstrinum verið til umræðu, meðal annars í velferðarþjónustu, mannréttindamálum og skólamálum. Einnig hafa vaknað spurningar um framtíðarfyrirkomulag þjónustunnar og mögulega aukna aðkomu einkaaðila.

Hvert stefnir borgin? Hver er stefna Samfylkingarinnar og hver verða næstu skref borgarfulltrúa flokksins?

Samfylkingarfélagið í Reykjavík býður til opins fundar með borgarfulltrúum Samfylkingarinnar þar sem farið verður yfir stöðu mála, stefnu flokksins og verkefnin fram undan.

📅 Miðvikudaginn 28. október
⏰ Kl. 20:00
📍 Hallveigarstígur 1

Á fundinum gefst tækifæri til að spyrja spurninga, ræða málin og koma sjónarmiðum á framfæri.

Fundurinn er öllum opinn og öll hjartanlega velkomin!