Opið hús: vinnufundur málefnanefnda

Samfylkingin býður til vinnufundar í tengslum við málefnastarf flokksins.
Samfylkingin býður til vinnufundar í tengslum við málefnastarf flokksins.
Laugardaginn 28. nóvember
Kl. 11:00 - 13:00
Salur Samfylkingarinnar á Akureyri - Sunnuhlíð 12
Samfylkingin býður flokksfélögum á vinnufund um uppfærslu á stefnu flokksins fyrir landsfund vorið 2027. Hverju vilt þú breyta í gildandi stefnu? Hvað vantar og hvaða áherslur vilt þú halda í?
Hægt verður að koma við hvenær sem er á þessum tíma, taka þátt í samtölum við tengiliði málefnanefnda, kjörna fulltrúa og góða félaga og leggja sitt af mörkum til málefnastarfsins.
Við upphaf fundar mun kjördæmisráð Norðausturkjördæmis halda árlegan fund kjördæmisráðs.
Á fundinum verða lagðir fram reikningar kjördæmisráðsins fyrir síðastliðið ár og í framhaldinu verður vinnufundurinn um uppfærslu á stefnu Samfylkinnar fyrir landsfund vorið 2027.
Félagar í Samfylkingunni eru hvattir til að mæta og taka þátt í að móta stefnu flokksins.
Markmiðið er að safna fjölbreyttum sjónarmiðum og hugmyndum sem nýtast við áframhaldandi vinnu við uppfærslu á stefnu Samfylkingarinnar.
Öll hjartanlega velkomin!