– Siglingaklúbburinn Ýmir - Naustavör 14, Kópavogur

Félagsfundur með Guðmundi Ara

Samfylkingin í Kópavogi býður til opins félagsfundar með Guðmundi Ara Sigurjónssyni, varaformanni Samfylkingarinnar.

Miðvikudaginn 18. nóvember, kl. 20:00 í sal Siglingafélagsins Ýmis, Kópavogi.

Katrín Júlíusdóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og fyrrverandi ráðherra, mun stýra fundinum og umræðum.

Á fundinum gefst tækifæri til að ræða málin, spyrja spurninga og eiga samtal við varaformanninn.

Heitt verður á könnunni og góðar umræður á dagskrá.

Fundurinn er öllum opinn og öll hjartanlega velkomin!