Getum við tekið lýðræði og mannréttindum sem gefnum?

Sótt er að lýðræðinu víða um heim og mannréttindi sem virtust trygg eru aftur orðin að pólitísku átakamáli. Gervigreind, samfélagsmiðlar og upplýsingaóreiða hafa mikil áhrif á samfélögin okkar og víða sjáum við skipulagt bakslag gegn réttindum kvenna, hinsegin fólks, innflytjenda og annarra hópa.
Ísland stendur ennþá sterkt í alþjóðlegum samanburði en við finnum þó fyrir þessari þróun hér á landi.
Áður en málefnahópur Samfylkingarinnar um stjórnarfar og mannréttindi hefst handa við að endurskoða stefnu flokksins viljum við skoða stóru myndina og velta fyrir okkur:
Hverjar eru stærstu áskoranir lýðræðisins á okkar tímum?
Hvaða mannréttindamál eru að verða brýnust?
Hvað þýðir þetta fyrir jafnaðarflokk á Íslandi árið 2026?
Með okkur verða:Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Íslands, sem ræðir stöðu og framtíð mannréttinda.Sævar Ari Finnbogason, heimspekingur og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst, sem fjallar um lýðræðið og þær áskoranir sem það stendur frammi fyrir.
Hvar: Húsnæði Samfylkingarinnar – Hallveigarstíg Hvenær: Mánudagur 2. nóvember kl. 20:00
Fundurinn er opinn öllum félögum sem hafa áhuga á þessum pælingum – hvort sem þau ætla að taka virkan þátt í málefnastarfinu eða vilja einfaldlega hlusta og læra.