– Rauði krossinn, Eyravegur 23 - Selfoss

Hvert stefnum við með heilbrigðiskerfið

Málefnanefnd Samfylkingarinnar um velferðarmál efnir til opins fundar miðvikudaginn 11. nóvember kl. 19:30 í húsnæði Rauða krossins, Eyrarvegi 23, Selfoss.

Hvert stefnum við með íslenska heilbrigðiskerfið?

Ragna Sigurðardóttir, þingkona stýrir fundi.

Alma Möller, heilbrigðisráðherra segir frá helstu sigrum í heilbrigðismálum á kjörtímabilinu og hvernig hún samræmist heildarsýn jafnaðarmanna og stefnu Samfylkingarinnar.

Tækifæri fyrir gesti að spyrja ráðherra og Rögnu.
Eigum samtal um framtíðarsýn fyrir Ísland.

Umsjón með málefnavinnu velferðarnefndar er í höndum Ástþórs Jóns Ragnheiðarsonar, formanns nefndar og Rögnu Sigurðardóttur, þingkonu.

Öll velkomin.