Opið hús: vinnufundur málefnanefnda

Samfylkingin býður til vinnufundar í tengslum við málefnastarf flokksins.
📅 Laugardaginn 21. nóvember
⏰ Kl. 19:30 – 21:00
📍 Víkurbraut 13 - Reykjanesbæ
Samfylkingin býður flokksfélögum á vinnufund um uppfærslu á stefnu flokksins fyrir landsfund vorið 2027. Hverju vilt þú breyta í gildandi stefnu? Hvað vantar og hvaða áherslur vilt þú halda í?
Hægt verður að koma við hvenær sem er á þessum tíma, taka þátt í samtölum við tengiliði málefnanefnda, kjörna fulltrúa og góða félaga og leggja sitt af mörkum til málefnastarfsins.
Markmiðið er að safna fjölbreyttum sjónarmiðum og hugmyndum sem nýtast við áframhaldandi vinnu við uppfærslu á stefnu Samfylkingarinnar.
Öll hjartanlega velkomin! 🌹