Opið hús: vinnufundur málefnanefnda

Samfylkingin býður til vinnufundar í tengslum við málefnastarf flokksins.
Samfylkingin býður til opins húss í tengslum við málefnastarf flokksins.
📅 Laugardaginn 21. nóvember
⏰ Kl. 10:00–15:00
📍 BSRB - Grettisgata 89
Gestir geta gengið á milli og kynnt sér stefnuskrá Samfylkingarinnar og skrifað athugasemdir, hugmyndir og tillögur á gula miða sem festir verða við viðkomandi málaflokka.
Málaflokkunum er skipt upp yfir daginn:
10 – 12:30 Efnahags- og atvinnumál
10 – 12:30 Loftslags- og umhverfismál
10 – 12:30 Alþjóðamál
12:30 – 15 Velferðarmál
12:30 – 15 Mennta- og menningarmál
12:30 – 15 Stjórnarfar og mannréttindi
Engin hefðbundin fundardagskrá – bara opið hús og samtal um málefnin!
Hægt verður að koma við hvenær sem er á milli kl. 10 og 15, taka þátt í samtölum við tengiliði málefnanefda, kjörna fulltrúa og góða félaga og leggja sitt af mörkum til málefnastarfsins.
Markmiðið er að safna fjölbreyttum sjónarmiðum og hugmyndum sem nýtast við áframhaldandi vinnu við stefnuskrána.
Öll hjartanlega velkomin! 🌹