Spjallkaffi 60+ Ragnheiði Kristjánsdóttur

Miðvikudaginn 25. nóvember
Kl. 10:00–12:00
Hallveigarstígur 1, 101 Reykjavík
Gestur okkar að þessu sinni er Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor í sagnfræði. Hún mun ræða við okkur um bók sína „Þurfamenn að fá mannréttindi“ sem fjallar um sögu fátækrahjálpar á Íslandi en í forgrunni eru breyttar hugmyndir um réttindi þeirra sem þurftu að þiggja fátækrahjálp. Breyting á lögum árið 1927 er skoðuð með augum Reykvíkinga, bæði þeirra bæjarbúa sem þurftu að þiggja hjálp og þeirra stjórnmála- og embættismanna sem sáu um að framfylgja nýju lögunum.
Heitt á könnunni og eitthvað gott með því.
Öll hjartanlega velkomin!