– Hallveigarstígur 1 - 101 Reykjavík

Tækifæri og áskoranir í menntakerfinu

Á hvaða vegferð er ríkisstjórnin í menntamálum? Hvernig er staðan í skólunum og hvar liggja helstu tækifærin til að gera betur?

Málefnahópur Samfylkingarinnar um menntamál býður til samtals með Ágústi Ólafi aðstoðarmanni Ingu Sæland menntamálaráðherra og Jóni Páli Haraldssyni skólastjóra Laugalækjarskóla.

Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20:00 á Hallveigarstíg 1.

Ágúst Ólafur fer yfir það sem ráðuneytið hefur unnið að og áherslur þess á kjörtímabilinu. Jón Páll fjallar um stöðuna á gólfinu, tækifærin og áskoranirnar í daglegu skólastarfi. Í kjölfarið verða spurningar og umræður.

Framundan er endurskoðun á menntastefnu Samfylkingarinnar sem málefnahópurinn ber ábyrgð á. Fundurinn er liður í að undirbúa þá vinnu og fá sjónarmið og hugmyndir grasrótarinnar inn í samtalið frá upphafi.

Við hvetjum öll sem brenna fyrir menntamálum til að mæta og taka þátt!