Þarf Samfylkingin að hugsa alþjóðamálin upp á nýtt?

Miklar væringar hafa orðið í alþjóðastjórnmálum undanfarin misseri. Þróun mála hefur áhrif á hagsmuni og stöðu Íslands sem og alþjóðakerfisins og því tímabært að ræða hvort og hvernig skerpa megi á stefnu Samfylkingarinnar í málaflokknum í aðdraganda landsfundar vorið 2027.
Málefnanefnd Samfylkingarinnar stendur fyrir opnum fundi sem haldinn verður á Hallveigarstíg 1, miðvikudaginn 4. nóvember kl. 20:00.
Flutt verða stutt erindi frá nokkrum helstu sérfræðingum landsins á sviði alþjóðamála sem munu tæpa á þeim atriðum sem ræða þarf á vettvangi stjórnmálanna í breyttri heimsmynd.
Umfjöllunarefni og frummælendur eru:
Ísland og Evrópa
Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor við Háskólann á Bifröst
Ísland, Norðurslóðir og Kína
Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands
Ísland og Bandaríkin, öryggis- og varnarmál
Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur
Ísland og alþjóðleg þróunarsamvinna
Guðrún Sif Friðriksdóttir, mannfræðingur og sérfræðingur í málefnum Afríku
Opnar umræður verða að erindum loknum.
Fundurinn er innlegg inn í starf málefnanefndar Samfylkingarinnar um alþjóðamál en í haust verður hafist handa við endurskoðun á stefnu flokksins í málaflokknum fyrir landsfund. Allir áhugasamir félagar eru hvattir til að taka þátt í málefnavinnunni framundan!
Umsjón með málefnavinnu alþjóðahópsins er í höndum Magneu Marinósdóttur, alþjóðastjórnmálafræðings, og Dagbjartar Hákonardóttur, þingmanni og fulltrúa Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd Alþingis.
Fundurinn verður einni á Zoom og verður slóðinni deilt þegar nær dregur.