Ungt fólk og framtíð byggðanna

Boðað er til fundar á Zoom þar sem sjónum verður beint að byggðamálum, framtíð byggðanna og tækifærum ungs fólks til að búa og starfa um land allt.
🌹 Ungt fólk og framtíð byggðanna – opinn fundur um byggðamál 🌹
📅 Mánudaginn 16. nóvember
⏰ Kl. 17:00
💻 Zoom
Dagskrá fundarins:
🏘️ Byggðamál í öll mál
Hólmfríður Sveinsdóttir, hjá innviðaráðuneytinu, fjallar um byggðaáætlun og byggðamál.
🌱 Á framtíðin sér heimilisfang? – Að vera, fara eða koma aftur?
Eyrún Fríða fjallar um ungt fólk og byggðamál, búsetuval og framtíðarmöguleika ungs fólks í byggðum landsins.
Bæði erindin verða um 20 mínútur og að þeim loknum gefst tími fyrir spurningar.
Fundinum lýkur með opnum umræðum þar sem þátttakendur geta komið sínum sjónarmiðum og hugmyndum á framfæri.
Öll áhugasöm eru velkomin til þátttöku! 🌹
https://us06web.zoom.us/j/89046136722
Meeting ID: 890 4613 6722