Vinnum þetta saman!
Kosningastefna Samfylkingarinnar og félaga í Ölfusi 2026 - 2030
- Við ætlum ekki að þrengja að hafnarsvæðinu með íbúabyggð. Skipulagsmál eiga að snúast um að auka lífsgæði íbúa og stuðla að fjölbreyttu atvinnulífi.
- Við ætlum að tryggja öryggi eldri borgara með bakvakt og efla félagsstarf þeirra með stuðningi sveitarfélagsins.
- Við ætlum að efla íbúalýðræði og virkja raddir allra íbúa.
- Við ætlum að stórefla frístundastarf og félagsmiðstöð og styðja betur við velferð ungs fólks.
- Við ætlum að byggja fjölnota íþróttahús.
1. Velferð íbúa í forgrunni
Eldra fólk lifir virku og öruggu lífi í Ölfusi
- Tryggjum aukið öryggi eldra fólks í Ölfusi með bakvakt og aukinni viðveru á Níunni, ásamt því að halda húsakynnum hennar opnum og aðgengilegum fyrir íbúa Níunnar og aðra eldri borgara.
- Byggjum við sal Níunnar sem er orðinn of lítill.
- Tryggjum eldra fólki og fjölskyldum örugga handleiðslu á efri árum með því að bjóða samfellda þjónustu með samþættingu heimaþjónustu, heimahjúkrunar og öldrunarráðgjafar sem byggir á þörfum hvers og eins, þar með talið þörf fyrir heimilishjálp, félagsstarf, heilsueflingu, dagdvöl, iðju- og sjúkraþjálfun.
- Eflum félagsstarf eldra fólks með stuðningi sveitarfélagsins.
- Nýtum þjóðarátak ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu hjúkrunarrýma og tryggjum að hjúkrunarheimili rísi í Þorlákshöfn, með markvissri hagsmunagæslu og góðri samvinnu við ríki, nágrannasveitarfélög og aðra sem að málinu koma.
- Mótum heildræna stefnu í málefnum eldra fólks í samvinnu við þau og aðra hagsmunaaðila.
- Tryggjum gjaldfrjálsan aðgang eldra fólks að sundi og rækt og áframhaldandi framboði á styrktarþjálfun.
Fjölbreytt og réttlátt samfélag fyrir alla íbúa
- Virkjum lögbundið notendaráð, samráðshóps fatlaðs fólk. Ekkert um okkur án okkar.
- Eflum stoðþjónustu við börn og fullorðna innan og utan stofnana sveitarfélagsins.
- Bætum og eflum aðstöðu sértæks stuðnings í Grunnskólanum (Bjarg námsver).
- Förum í heildstæða stefnumótun í samvinnu við hagsmunaaðila og fylgjum eftir lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks með áherslu á búsetufrelsi fatlaðs fólks.
- Greinum og bætum aðgengi í stofnunum sveitarfélagsins og aðgengi að upplýsingum, til dæmis á heimasíðu sveitarfélagsins.
- Eflum enn frekar tækifæri þegar kemur að vinnu, virkni og hæfingu í samstarfi við Viss.
- Höfum frítt í sund fyrir öryrkja og fólk á endurhæfingarlífeyri ásamt aðgangi að líkamsrækt utan annatíma.
Skólar og félagsstarf barna okkar skipta öllu máli
- Setjum frístundir og félagsstarf barna og ungmenna í forgang, með fjölbreyttu framboði fyrir öll og tryggjum sértækt frístunda- og íþróttastarf fyrir fötluð börn og ungmenni.
- Stöndum vörð um öflugt, faglegt og framsækið skólastarf líkt og verið hefur í sveitarfélaginu um áratugaskeið. Skólar barna okkar skipta öllu máli, því þar þarf öllum að líða vel.
- Höldum áfram með áform um viðbyggingu við Grunnskólann í Þorlákshöfn
- Styðjum á ný við leikskólakennaranám starfsfólks leikskóla til að að tryggja að nægilega margt fagfólk starfi við leikskólana og bregðumst þannig markvisst við manneklu í leikskólum.
- Vinnum með ríkinu að tryggri fjármögnun leikskólastigsins og lögfestingu á rétti barna til leikskólavistar, með það að markmiði að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.
- Tryggjum að hönnun, umhverfi og verklag í leikskólum styðji við öryggi barna og faglegt öryggi starfsfólks, með skýrum verkferlum og fræðslu fyrir börn, foreldra og starfsfólk.
- Auðveldum börnum í leikskólanum Hraunheimum að ferðast um umhverfi sitt með kaupum á rafmagnsburðarhjóli.
Virkjum unga fólkið
- Fjölgum tækifærum fyrir ungmenni með fjölbreyttari sumarstörfum, sérstökum stuðningi við afreksfólk í íþróttum og listum og samstarfi við atvinnulífið.
- Gefum ungmennum raunverulega rödd í sveitarfélaginu og byggjum sveitarfélagið upp sem barnvænt samfélag UNICEF sem stendur vörð um velferð allra en innleiðingu á verkefninu ,,Barnvænt sveitarfélag” er ekki lokið. Við horfum líka til verkefnisins Börnin okkar í Mosfellsbæ sem eflir forvarnir, snemmtæka íhlutun og styrkingu barna-verndarstarfs.
- Leitum eftir samstarfi um lágþröskuldaþjónustu fyrir ungt fólk við aðila eins og Bergið Headspace því ekkert ungmenni á að upplifa að það fái ekki stuðning þegar þörf er á. Bergið headspace er ráðgjafa- og stuðningsúrræði fyrir ungt fólk sem þar getur fengið ókeypis trúnaðarsamtal og aðstoð við andlegri vanlíðan og áskorunum í lífinu.
2. Skipulag á forsendum lífsgæða, fjölbreytts atvinnulífs og öflugrar hagsmunagæslu
Byggjum ákvarðanir á skýrri framtíðarsýn
- Hættum við áform um íbúðauppbyggingu í nánd við hafnarsvæðið þannig að framtíðarmöguleikar hafnarinnar og atvinnulífsins við hana verði ekki skertir.
- Skipulagsmál taki mið af lífsgæðum íbúa og náttúrugæðum.
- Tryggjum hóflega og fjölbreytta uppbyggingu íbúðarhúsnæðis sem styður við félagslega blöndun, gott jafnvægi í íbúasamsetningu og hverfi sem dafna til lengri tíma. Þannig er hægt að byggja upp innviði og þjónustu samhliða fjölgun íbúa.
- Setjum endurbætur á innviðum í gamla hverfinu í forgang, meðal annars á fráveitu og gangstéttum.
- Vinnum með íbúum í dreifbýli með ráðgjöf, samræmingu og samstarfi þegar kemur að uppbyggingu nauðsynlegra innviða, svo sem vatns- og fráveitu og höfum í huga leiðbeiningarskyldu og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga.
- Byggjum upp fleiri íbúðir í samstarfi við Bjarg íbúðafélag sem tryggir tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði, sem eru fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB, aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.
Byggjum upp bæði öflugt og fjölbreytt atvinnulíf
- Endurvinnum atvinnustefnu sveitarfélagsins með auknu samráði við atvinnulíf og íbúa með skýrri aðgerðaráætlun og mælanlegum markmiðum.
- Lækkum fasteignaskattsálagningu á atvinnuhúsnæði með því að nýta það svigrúm sem skapast þegar Alþingi samþykkir lög um að útbúa sérstakan flokk fasteignagjalda fyrir orkumannvirki og afnemum allar undanþágur frá fasteignaskatti á þann flokk.
- Sækjum markvisst fram í að fjölga atvinnutækifærum, styrkjum höfnina og byggjum upp fjölbreyttara atvinnulíf.
- Höldum áfram að byggja upp Ölfus Cluster sem drifkraft nýsköpunar, sprotastarfs og þekkingarmiðlunar.
Samstarf er lykill að árangri
- Styrkjum samstarf við nærliggjandi sveitarfélög og lykilaðila á Suðurlandi til að nýta betur sameiginleg tækifæri í nýsköpun, atvinnuþróun og uppbyggingu.
- Vinnum í góðu og árangursríku samstarfi við ríkið að framgangi mikilvægra mála fyrir sveitarfélagið, svo sem samgöngumála, bættri vetrarþjónustu og byggingu hjúkrunarheimilis.
3. Lifandi samfélag og aukin lífsgæði
Íþróttahúsið, þar sem hjartað slær
- Byggjum fjölnota íþróttahús í Þorlákshöfn sem nýtist fjölbreyttri starfsemi og samfélaginu í heild.
- Höldum áfram að styðja við öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu.
- Setjum nýja vaðlaug á sundlaugarsvæðinu á áætlun, þar sem hafa mætti yfirsýn yfir rennibrautarlaugina.
Menning er stemning
- Bókasafnið og Versalir verði hjarta samfélagsins, með öflugu og markvissu félagsstarfi í samstarfi við Félag eldri borgara, stofnanir, foreldra ungra barna, foreldrafélög og önnur félagasamtök í sveitarfélaginu. Mikilvægt er að auka mönnun til að efla starfsemina.
- Mótum menningarsal í miðbæ Þorlákshafnar í nánu samstarfi við menningarlífið í Ölfusi.
- Höfum frumkvæði að því, í samstarfi við aðra aðila, að tryggja aðgengi að hentugu húsnæði fyrir félagsstarf í dreifbýli Ölfuss.
- Mótum bæjarhátíð dreifbýlisins í Ölfusi í nánu samstarfi við íbúa og fulltrúa þeirra, þar sem afurðir, handverk og menning svæðisins fær að njóta sín.
- Jólaljós verði sett upp í þéttbýliskjörnum í dreifbýli til jafns við önnur svæði sveitarfélagsins.
- Varðveitum og lyftum sögu Selvogs og annarra merkra staða í dreifbýli og Þorlákshöfn.
- Tryggjum nýjum íbúum hlýjar móttökur, góða upplýsingagjöf og greiða leið inn í samfélagið.
- Endurvekjum þorrablótið í íþróttahúsinu með stuðningi sveitarfélagsins.
Gerum umhverfið fallegt og skemmtilegt
- Mörkum 10 ára stefnu í uppbyggingu á þéttu neti reiðstíga og reiðhjólastíga um sveitarfélagið með áherslu á dreifbýli í samvinnu við íbúa, íþróttafélög og hestamannafélög.
- Tryggjum áframhaldandi uppbyggingu í Þorláksskógum og förum í átak í að rækta upp gróður í Þorlákshöfn.
- Eflum útivistarsvæðið við Hafnarnesvita, t.d. með grillskýli og leikvelli sem býður upp á fjölbreyttan og skapandi leik.
- Komum upp útisviði og grillhúsi í Skrúðgarðinum og nýtum þannig garðinn enn betur fyrir skemmtilega viðburði.
- Bætum þjónustu í dreifbýli með aðgengilegum grenndargámum.
4. Fagleg stjórnsýsla og öflugt íbúalýðræði
Virkt samtal við íbúa og öflug upplýsingagjöf
- Stóreflum notendasamráð og nefndakerfi sveitarfélagsins til að tryggja virkari þátttöku íbúa og sterkari raddir ólíkra hópa, með öflugra starfi öldungaráðs, notendaráðs félagsþjónustu og ungmennaráðs, stofnun fjölmenningarráðs og skýrri aðgerðaáætlun um úrbætur í þjónustu sveitarfélagsins þar sem við á.
- Tökum upp heimastjórnir í stað dreifbýlisráðs, þar sem íbúar dreifbýlis kjósa tvo af þremur fulltrúum, til að tryggja sterkari rödd dreifbýlisins, reglulega umfjöllun og samráð um þeirra málefni og beina leið til að koma þeirra málefnum á dagskrá bæjarstjórnar.
- Eflum samtal við íbúa með opnum fundum bæjarfulltrúa og reglulegum viðtalstímum.
- Bætum upplýsingagjöf til bæjarbúa með tíðari fréttum á vefsíðu sveitarfélagsins, skýrari fundargerðum, streymum bæjarstjórnarfundum undantekningarlaust beint á netinu án skráningar og birtum dagbók bæjarstjóra vikulega á vef sveitarfélagsins
- Komum á fót verkefninu „Betra Ölfus“, þar sem íbúar geta með beinum hætti sett fram hugmyndir, mótað forgangsröðun og haft áhrif á málefni sveitarfélagsins
- Bætum aðgengi að upplýsingum og þjónustu fyrir íbúa með erlendan bakgrunn, út frá þeirra þörfum, í samráði við nýtt fjölmenningarráð.
Leiðbeinandi stjórnsýsla og eftirsóknarverður vinnustaður
- Vinnum áfram að því að sveitarfélagið sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem hæft starfsfólk velur að starfa með góðum starfsanda og samkeppnishæfum kjörum, enda er það lykillinn góðri og faglegri þjónustu við íbúa.
- Byggjum áfram upp faglega stjórnsýslu með skýrri eftirfylgni og samræmdri þjónustu sem byggir á jafnræði og fagmennsku.
- Yfirförum verkferla stjórnsýslu sveitarfélagsins til að tryggja leiðbeiningarhlutverk stjórnvalda samkvæmt stjórnsýslulögum, sérstaklega í flóknum málaflokkum eins og skipulags- og byggingarmálum.
- Tryggjum skýrari og aðgengilegri framsetningu fjárhags- og fjárfestingaáætlana, með greinargerð, rökstuðningi, tímasetningum og auknu samráði við íbúa.
Með því að smella hér má skoða kosningastefnuna í heild sinni á pdf skjali.
By clicking here you can view the entire election manifesto in a pdf file.
Klikając tutaj możesz zobaczyć cały manifest wyborczy w pliku PDF.