Flokksval Samfylkingarinnar í Kópavogi

Flokksval í Kópavogi fer fram 7. febrúar 2026

Upplýsingar fyrir kjósendur í flokksvals Samfylkingarinnar í Kópavogi

Flokksval í Kópavogi fer fram 7. febrúar 2026

Um er að ræða flokksval þar sem flokksmenn og skráðir stuðningsmenn einir hafa kosningarétt, sbr. grein 3.2. í skuldbindandi reglum Samfylkingarinnar.

Kosið verður um efstu 4 sætin á framboðslista og er kosning bindandi í þau sæti. Framboðslisti verður svokallaður paralisti. Það þýðir að kvenframbjóðandi skal hið minnsta skipa annaðhvort sæti 1 eða 2, hið minnsta annaðhvort næstu tveggja sæta og svo koll af kolli í hver tvö sæti. Eða öfugt.

Kjörgengir eru allir félagsmenn í Samfylkingunni sem uppfylla skilyrði landslaga um kosningarétt og kjörgengi og hafa meðmæli félaga í Samfylkingunni. Fjöldi meðmælenda skal vera að lágmarki 15 og að hámarki 30. 

Flokksvalið verður haldið þann 7. febrúar 2026 og verður auglýst nánar síðar. 

    • Um flokksval er að ræða þar sem kosningarétt hafa allir félagsmenn í Samfylkingunni með lögheimili í Kópavogi  sem hafa náð 16 ára aldri á valdegi og skráðir stuðningsmenn Samfylkingarinnar sem eru 16 ára og eldri og undirritað hafa stuðningsyfirlýsingu og skráð sig á kjörskrá innan lokafrests til skráningar.
  • Kjörstjórn skipa Þorgerður Jóhannsdóttir, formaður, Björn Þór Rögnvaldsson og Jón Magnús Guðjónsson. 

    Netfang kjörstjórnar fyrir flokksvalið er: xskopavogur2026@gmail.com