Lækkum skatt­byrði barna­fólks, hækkum skatta á ríkasta 1 prósentið

Samfylkingin er í sókn, kannski vegna þess að kjósendur sjá að sterk félagshyggjustjórn er það besta sem getur gerst fyrir heimilisbókhaldið. Það skiptir ekki bara máli hver stjórnar heldur líka fyrir hverja er stjórnað og með hverjum.

Jói, Jóhann Páll, þingflokkur
Jóhann Páll Jóhannsson Alþingismaður

Samfylkingin ætlar að stjórna fyrir almenning. Við viljum leiða saman flokka sem eru nálægt hver öðrum á hinu pólitíska litrófi, taka neitunarvaldið af Sjálfstæðisflokknum í loftslagsmálum, velferðarmálum og auðlindamálum og hverfa frá 100 milljarða niðurskurðaráformum núverandi stjórnarflokka; efla almannaþjónustuna, heilbrigðis- og menntakerfið í stað þess að skera niður.

Því stærri og sterkari sem Samfylkingin verður, því líklegra er að það verði mynduð félagshyggjustjórn á Íslandi og að áætlun Samfylkingarinnar um að lækka skattbyrði lágtekju- og millitekjuhópa en hækka hana hjá ríkasta 1 prósentinu verði að veruleika.

Eitt af lykilmálum okkar er innleiðing barnabótakerfis að norrænni fyrirmynd. Dæmin sanna að sterk almenn barnabótakerfi með viðbótarstuðningi við einstæða foreldra eru vel til þess fallin að draga úr barnafátækt og stuðla að jöfnum tækifærum. Skarpar tekjutengingar og skerðingar sem bíta snemma geta aftur á móti skapað fátæktargildru fyrir fólk í lægri tekjuhópum.

Hvað þýðir barnabótaleið Samfylkingarinnar fyrir þitt heimili? Hér er reiknivél þar sem þú getur séð það svart á hvítu.

Kerfisbreytingin þarf að eiga sér stað samhliða stóraukinni uppbyggingu leigu- og búseturéttaríbúða í samstarfi við húsnæðisfélög án hagnaðarsjónarmiða, en með því drögum við úr húsnæðiskostnaði og aukum þannig enn frekar ráðstöfunartekjur lágtekjufólks. Auk þess þarf að draga úr skerðingum í almannatryggingakerfinu og stöðva þá kjaragliðnun sem hefur átt sér stað milli launafólks og þeirra sem reiða sig á lífeyri.

Barnabótatillögur Samfylkingarinnar kosta innan við 9 milljarða króna og verða fjármagnaðar með stóreignaskatti á ríkasta 1 prósentið, skatti sem leggst aðeins á það sem er umfram 200 milljónir króna í hreina eign. Þetta er hagkvæm og skynsamleg skattheimta og getur skilað 14 til 15 milljörðum króna á ári. Jafnframt þarf að efla skatteftirlit og tryggja almenningi aukna hlutdeild í auðlindarentunni í sjávarútvegi. OECD og AGS hafa hvatt til þess að skattlagningarvaldinu sé beitt af festu til að sporna gegn eignaójöfnuði. Þá hafa ýmsir af virtustu hagfræðingum heims bent á að vel útfærðir stóreignaskattar og auðlindagjöld geta skilað umtalsverðum tekjum án þess að bitna á verðmætasköpun og framleiðslu í hagkerfinu.

Undanfarin 30 ár hefur skattbyrði lágtekju- og millitekjuhópa aukist gríðarlega á Íslandi en skattbyrði verið létt af tekjuhæstu og eignamestu hópum samfélagsins. Samfylkingin vill snúa þessari þróun við, klípa ögn af eignastabba ríkasta 1 prósentsins og auðlindaarðinum í sjávarútvegi og nota svigrúmið sem þannig skapast til að styðja betur við barnafólk og þá hópa sem hafa setið eftir á undanförnum árum.

Þetta er skynsamleg jafnaðarstefna – og nú erum við í dauðafæri að koma henni til framkvæmda.

Greinin birtist á vísi.is 21. sept.