Óskað eftir framboðum í Verkalýðsmálaráð

Kosið verður um fimm sæti á vorfundi flokksstjórnar laugardaginn 12. mars, framboðsfrestur rennur út kl. 12:00 þann 12. mars.
Breytingar hafa orðið á Verkalýðsmálaráði og óskum við því eftir framboðum til Verkalýðsmálaráðs. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í Verkalýðsmálaráði biðjum við þig að senda okkur framboð þitt í gegnum eyðublaðið hér fyrir neðan. Kosið verður um fimm sæti á vorfundi flokksstjórnar laugardaginn 12. mars, framboðsfrestur rennur út kl. 12:00 þann 12. mars.
Framboðstilkynningu finnur þú hér.
Upplýsingar um vorfund flokksstjórnar hér.
12.13 Stjórn verkalýðsmálaráðs skal boða fundi ráðsins, undirbúa og ákveða dagskrá þeirra. Meginverkefni stjórnar verkalýðsmálaráðs er að standa að og styðja við virkt samráð forystu Samfylkingarinnar við jafnaðarfólk í forystu verkalýðshreyfingarinnar
12.14 Formaður stjórnar verkalýðsmálaráðs er tengiliður forystu flokksins við forystufólk í launþegahreyfingunni. Í samráði við framkvæmdastjóra og formann Samfylkingarinnar skipuleggur hann og boðar reglubundna samráðsfundi með fulltrúum stéttarfélaga. Stjórn verkalýðsmálaráðs má kalla saman sérstaklega, með skömmum fyrirvara, framkvæmdastjórn og/eða þingflokki til ráðuneytis.
12.15 Formaður eða varaformaður verkalýðsmálaráðs er einnig tengiliður ráðsins við framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar og hefur seturétt á fundum framkvæmdastjórnar með málfrelsi og tillögurétti. Í tengslum við flokkstjórnarfundi heldur stjórn verkalýðsmálaráðs opnar málstofur eftir þörfum.