Plan Samfylkingar: Svona náum við niður vöxtunum
Fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar verður að kveða niður vexti og verðbólgu og endurheimta traust til hagstjórnarinnar á Íslandi.
Lykillinn að því er að við náum styrkri stjórn á fjármálum ríkisins og komum húsnæðismarkaðnum í fastari skorður. Um þetta snýst plan Samfylkingarinnar.
Í fyrsta lagi ætlum við að breyta lögum um opinber fjármál og taka upp stöðugleikareglu um jafnvægi tekna og rekstrarútgjalda með tilliti til hagsveiflunnar. Þannig tryggjum við aukna festu og drögum úr freistnivanda stjórnmálanna við meðferð opinbers fjár.
Í öðru lagi ætlum við að taka til í ríkisrekstrinum, draga úr sóun í opinberum framkvæmdum, minnka skriffinnsku og efla stafræna innviði. Að sama skapi þarf að styrkja tekjustofna ríkisins með sanngjörnum auðlindagjöldum og auknu jafnræði í skattheimtu. Við erum ósammála þeim stjórnmálaflokkum sem vilja að ríkasta 1 prósentið á Íslandi greiði miklu lægra skatthlutfall en millistéttin.
Í þriðja lagi verðum við að vinna hratt á því stórkostlega ójafnvægi sem hefur skapast milli framboðs og eftirspurnar á húsnæðismarkaði. Samfylkingin boðar bráðaaðgerðir til að ýta undir að íbúðir nýtist til búsetu frekar en skammtímaleigu til ferðamanna og liðka fyrir uppbyggingu færanlegra einingarhúsa og breytingu vannýtts atvinnuhúsnæðis í vandaðar íbúðir. Með þessu er hægt að auka íbúðaframboð talsvert meira á næstu tveimur árum en áætlanir stjórnvalda gera ráð fyrir. Þannig temprum við fasteigna- og leiguverð.
Til lengri tíma þarf fleira að koma til svo húsnæðismarkaðurinn færist í betra horf. Þar boðar Samfylkingin nýja nálgun í skipulagsmálum, aukið samstarf ríkis og sveitarfélaga við uppbyggingu innviða í nýjum íbúðahverfum, aukinn stuðning við leigjendur og óhagnaðardrifin íbúðafélög og skilvirkara fyrirkomulag lána til fyrstu kaupenda.
Skattbyrði vinnandi fólks hefur þyngst verulega síðustu tíu árin. Verðbólga hefur verið langt yfir markmiði allt kjörtímabilið og nú eru stýrivextir með því hæsta á byggðu bóli. Flokkurinn sem hefur staðið fyrir þessari þróun rekur nú kosningabaráttu sem snýst um lítið annað en að afbaka og fara með ósannindi um plan Samfylkingar. Ég er ekki viss um að það sé til árangurs fallið.
Samfylking ætlar ekki að hækka skatta á vinnandi fólk þrátt fyrir lygaflaum um annað. Og nei, heldur ekki smiði, hárgreiðslufólk og pípara eins og hefur verið ranglega haldið fram. Fólkið í landinu getur treyst Samfylkingu og Kristrúnu Frostadóttur til að passa upp á þetta.
Framkvæmdaplan Samfylkingar mun skila okkur traustari hagstjórn, lægri vöxtum og heilbrigðari húsnæðismarkaði. Þannig lögum við heimilisbókhaldið hjá fólkinu í landinu.
Greinin birtist á visi.is 12. nóvember 2024.