Fréttir

Hreinsa leit

Fréttir frá Reykjavík

Pétur H. Marteinsson

Reykja­vík sem gerir okkur stolt

Ég er stoltur af Reykjavík. Hér eru öflug hverfi. Sterk íþróttafélög. Hér er gott skólakerfi og mikið aðgengi að fjölbreyttum tómstundum fyrir börn. Hér eru sundlaugar sem eru gersemar sem aðrar þjóðir öfunda okkur af.

Skúli Helgason

Ó­venju mikið í húfi

Borgarstjórnarkosningar eru á laugardaginn. Þær geta valdið straumhvörfum í borginni, raunveruleg hætta er á að til valda komist hægri stjórn með Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Framsóknarflokki eða Miðflokki sem fórni samgöngusáttmálanum, uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði fyrir ungt fólk og fólk með lágar tekjur, innleiði tvöfalt kerfi í leikskólamálum sem hyglir starfsfólki stórfyrirtækja og einkavæði verðmæta hluti úr Orkuveitunni.

Heiða Björg Hilmisdóttir

Þetta gerðum við á 15 mánuðum

Nýr meirihluti Samfylkingar, Pírata, Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs , Sósíalista og Flokks fólksins tók við stjórn Reykjavíkur eftir pólitíska yfirplottun oddvita Framsóknarflokksins snemma árs 2025.

Sara Björg Sigurðardóttir

Ný Heið­mörk fyrir Reyk­víkinga

Austurheiðar hafa verið falin útivistarperla við borgarmörkin. Svæðið hefur verið vannýtt og óskipulagt, þar sem ólíkir hópar og tegundir útivistar hafa skarast og stundum rekist á.

Alma D. Möller

Reykja­vík þarf Regínu

Regína Ásvaldsdóttir skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Regína var nú síðast farsæll bæjarstjóri í Mosfellsbæ og náði þar framúrskarandi árangri í rekstri og þjónustu við bæjarbúa en ánægja íbúa Mosfellsbæjar mældist sú hæsta á landinu árið 2025.

Birkir Ingibjartsson

Bílar eru frá­bærir, nema ef við þurfum öll að nota þá

Samgönguverkfræðingurinn Daði Baldur Ottósson hjá Eflu varpaði upp merkilegum samanburði á milli norrænna borgarsvæða á ráðstefnu um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, Greiðari leið, sem haldin var á Hilton-hótelinu fyrir skemmstu.

Sara Björg Sigurðardóttir

Hvernig er að eldast í Reykjavík?

Eldra fólk og hagsmunasamtök þeirra hafa stigið fram í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og kallað eftir umræðu um hvað stjórnmálaflokkar vilja gera fyrir sístækkandi hóp eldra fólks í borginni.

Heiða Björg Hilmisdóttir

Byggjum meira félags­legt hús­næði í Reykja­vík

Í vikunni samþykkti borgarstjórn mikilvægar aðgerðir til að styrkja uppbyggingu félagslegs húsnæðis í Reykjavík.

Skúli Helgason

Sam­fylkingin vill byggja átta nýja leik­skóla og bæta mönnun

Samfylkingin hefur leitt leikskólauppbygginguna í borginni undanfarin átta ár og vill halda því áfram af fullum krafti.

Stein Olav Romslo og Anna Margrét Ólafsdóttir

Sam­fylkingin vill bæta starfs­að­stæður í leik­skólum

Leikskólinn er fyrsta skólastigið. Á sama tíma er hann lykilþjónusta í daglegu lífi fjölskyldna. Þetta ætlum við að viðurkenna með því að ná saman við ríkið um að lögfesta rétt barna til leikskólavistar.

Isabel Alejandra Diaz

Byggjum fyrir námsfólk

Í mínum huga hefur Reykjavík alltaf verið háskólaborg. Eða eins og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, sagði oft: „Það eru til tvenns konar borgir: deyjandi borgir og háskólaborgir!“