Menntakerfi sem tryggir öllum tækifæri
Samfylkingin beitir sér fyrir jöfnum tækifærum allra til náms.
Menntakerfi sem tryggir öllum tækifæri
Menntun skapar skilyrði fyrir lýðræðislegt samfélag víðsýni og réttlætis þar sem borgararnir hafa sjálfstraust og sækja lífsfyllingu í þátttöku. Við tökumst á við stærstu viðfangsefni samtímans með þekkingu, sköpun og vísindi að vopni.
Veldu málefni undir jafnaðarstefna í menntamálum
- Inngangur
- Leikskólinn
- Grunnskólinn
- Íþrótta- og tómstundastarf
- Framhaldsskólinn
- Háskólinn
- Endurmenntun
- Nám fatlaðs fólks
- Námsmenn
Nám fatlaðs fólks – réttur til náms á öllum skólastigum
Öll eigum við rétt á að mennta okkur eins og kemur fram í Sáttmála Sameinuðu þjóðana um málefni fatlaðs fólks. Á Íslandi á að vera jafnrétti til náms en þrátt fyrir að jákvæð skref hafi verið stigin er enn mikið verk að vinna. Ólíkar hindranir mæta fólki með ólíka færni og hæfni. Með því að hanna og vinna að inngildandi og aðgengilegu skólakerfi á öllum skólastigum komumst við nær því markmiði að hér ríki í raun jafnrétti til náms.
Samfylkingin leggur áherslu á að menntastofnanir fái fjármagn og faglegan stuðning til þess að verða inngildandi og aðgengilegar. Einnig þarf að tryggja fötluðum nemendum fullnægjandi aðstoð á skólatímum við allt sem viðkemur virkri þátttöku í námi og almennu skólastarfi. Við viljum auka þekkingu kennara og kennaranema, með menntun og endurmenntun, á inngildandi kennsluaðferðum og sérhæfni hvað varðar fatlaða nemendur.
Hafa þarf samráð við fatlað fólk um alla stefnumótun sem varðar þeirra líf og fullorðnu fólki með þroskahömlun á að bjóðast fjölbreytt nám að loknu námi í framhaldsskólum auk símenntunar, starfsþjálfunar og fullorðinsfræðslu.