Samfylkingin á Seltjarnarnesi
Frambjóðendur
Sjáðu listann hérSterkara samfélag á Seltjarnarnesi
Kosningastefna Samfylkingarinna á Seltjarnarnesi 2026 - 2030
Sjá nánarFréttir af Seltjarnarnesi

Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi
Það skiptir máli hvernig það er að búa í sínum bæ. Sveitarfélag er ekki aðeins metið út frá leikskólaplássum, gatnakerfi og skipulagsmálum, heldur líka út frá því hvort þar sé líf, samvera og tilfinning fyrir samfélagi.

Skólamál á Seltjarnarnesi í fyrsta sæti
Á Seltjarnarnesi á skólasamfélagið að vera öruggt, framsækið og manneskjulegt. Það krefst heilnæms húsnæðis, skýrrar sýnar, snemmtæks stuðnings og sveitarfélags sem setur hagsmuni barna ofar bið, vanhaldi og síhækkandi álögum á fjölskyldur.

Framsýni er besta vörnin fyrir Seltjarnarnes
Loftslagsbreytingar eru nú þegar farnar að hafa áhrif á Seltjarnarnes. Nú þarf sveitarstjórn sem þorir að horfast í augu við stöðuna, grípa til forvarna og verja íbúa, eignir og innviði með markvissum aðgerðum.

Velferð er ekki tilviljun – hún er pólitískt val
Sveitarfélag sem tekur velferð alvarlega tryggir ekki aðeins þjónustu heldur öryggi, sjálfstæði og lífsgæði á öllum lífsskeiðum.

Tómstundir mega ekki vera forréttindi á Seltjarnarnesi
Íþróttir, listir og tómstundir eru ekki aukaatriði í lífi barna heldur ein sterkasta forvörn sem samfélagið á.

Seltjarnarnes þarf uppbyggingu sem skilar árangri
Sterkt sveitarfélag byggist ekki á kyrrstöðu, skuldasöfnun og vannýttum tækifærum. Á Seltjarnarnesi viljum við nýta skipulag, samgöngur og uppbyggingu af ábyrgð til að styrkja rekstur bæjarins, fjölga íbúum og skapa meira líf á Nesinu.