Sóltún 26, 105 Reykjavík

Málefnavinna - menntamálahópur

Menntamálahópur Samfylkingarinnar heldur opinn umræðufund um málefni framhaldsskóla.

Farið verður yfir stefnu Samfylkingarinnar um framhaldsskóla, Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari VMA leiðir umræður og fer yfir stöðu framhaldsskóla. Áhugaverður fundur og allir sem láta sig menntamálin varða ættu ekki að láta sig vanta. Um að gera að taka þátt í umræðunni og vinna að eflingu stefnu Samfylkingarinnar í menntamálum. 

Hér er hægt að skoða stefnu Samfylkingarinnar í málefnum framhaldsskóla.