Flokksstjórnarfundur í Suðurnesjabæ

Flokksstjórnarfundur verður haldinn í Samkomuhúsinu í Sandgerði í Suðurnesjabæ laugardaginn 10. október.
Boðið verður upp á rútuferð fyrir alla félaga frá Reykjavík kl. 9:30 frá bílastæðinu við Hús verslunarinnar. Rútan mun keyra beint í Reykjanesbæ á fund Verkalýðsmálaráðs sem hefst kl. 10:30. Gestur fundarins er Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ ásamt öðrum góðum gestum og munu þau ræða saman um stöðu kjarasamninga. Þar næst keyrir rútan að Samkomuhúsinu í Sandgerði þar sem flokksstjórnarfundurinn verður haldinn.
Heimferð verður til Reykjavíkur kl. 23 eftir skemmtun og mat.
Þú getur skráð þig í rútuna um leið og þú skráir þig á fundinn: https://forms.gle/FCdfTK1C6cbkGQME8
Helstu tímasetningar
09:30 - Lagt af stað frá Reykjavík með rútu
10:30 - Fundur Verkalýðsmálaráðs
12:00 - Húsið opnar, skráning og hádegismatur
12:30 - Fundur settur
14:15 - Kynningar frambjóðenda til varaformanns
14:30 - Kaffihlé og kosning- veitingar frá kvenfélaginu Gefn
17:00 - Fundi slitið
17:00 - 23:00 - Gleðistund, kvöldmatur og skemmtiatriði
23:00 - Rúta til Reykjavíkur
Veisluhöld
Um kvöldið verður slegið upp Októberfest, pretzel, pylsur og sauerkraut verða á boðstólum.
Hobbitarnir frá Suðurnesjum sjá um að skemmta gestum. Dúettinn skipa þeir Ólafur Þór Ólafsson og Hlynur Þór Valsson sem eru „heimsfrægir” í Suðurnesjabæ en hafa spilað um allt land í gegnum tíðina við góðan orðstír.
Þetta er partý sem enginn vill láta fram hjá sér fara.
Kvöldverður og skemmtun kostar 7.000 og 6.000 fyrir námsmenn, lífeyrisþega og fólk á fjárhagsaðstoð greiðist inn á bk. 0111 hb. 26 rknr. 19928 - kt. 690199-2899.
Kosning varaformanns
Óskað er eftir framboðum til embættis varaformanns Samfylkingarinnar en núverandi varaformaður, Guðmundur Árni Stefánsson, hefur óskað eftir lausn frá embættinu.
Aðeins meðlimir flokksstjórnar Samfylkingarinnar geta boðið sig fram og hafa kosningarétt. Kjörtímabilið er sá tími sem eftir er af kjörtímabili fráfarandi varaformanns, sbr. grein 7.6 í lögum Samfylkingarinnar.
Frambjóðendur sem hafa tilkynnt framboð sitt til skrifstofu með því að fylla út eyðublaðið sem er að finna hér fyrir neðan geta óskað eftir afhendingu kjörskrár með tölvupósti á skrifstofu, samfylking@samfylking.is.
Flokksstjórn Samfylkingarinnar samanstendur af framkvæmdastjórn flokksins, fulltrúum sem kjörnir eru á aðalfundum kjördæmisráðanna, þrjátíu fulltrúum kjörnum á landsfundi, alþingismönnum og sveitarstjórnarfulltrúum Samfylkingarinnar, formönnum aðildarfélaga, kjördæmisráða og landshreyfinga, stjórn verkalýðsmálaráðs og formanni laganefndar.
Mikilvægar dagsetningar fram að fundi
25. september: Ályktunartillögur sem aðrir flytja en stjórn eða framkvæmdastjórn, skulu hafa borist a.m.k. tveimur vikum fyrir boðaðan fund.
10. október: Flokksstjórnarfundur verður haldinn í Suðurnesjabæ.