Staðan á vinnumarkaðnum

Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar efnir til opins fundar um stöðuna á vinnumarkaðnum tveim dögum eftir niðurstöðu um framtíð núverandi kjarasamninga.
Til að ræða saman og fara yfir málin verða þau Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Stefán Ólafsson prófessor.
Boðið er upp á rútuferð frá Reykjavík, frá bílastæðinu við VR, beint á fundinn. Þar næst keyrir rútan að Samkomuhúsinu í Sandgerði þar sem flokksstjórnarfundurinn verður haldinn. Rútan fer svo aftur til Reykjavíkur kl. 23 um kvöldið.
Fundurinn er haldinn á Park Inn by Radisson í Keflavík, Hafnargötu 57.
Meira um flokksstjórnarfundinn hér: https://xs.is/.../2026/10/flokksstjornarfundur-sudurnesjabae
Verið öll hjartanlega velkomin.