Bær sem starfar fyrir fólkið

1. Auðveldum rekstur og uppbyggingu

Samfylkingin styður við atvinnulíf og rekstur með einföldun regluverks og leyfisveitinga í anda þess sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur unnið að frá því hún tók við völdum og í samræmi við stefnumörkun flokksins á landsvísu vegna sveitarstjórnarkosninganna.

Samfylkingin styður við atvinnuuppbyggingu í bænum með markvissum hætti. Bærinn verður að bjóða upp á fjölbreyttar atvinnulóðir á hverjum tíma svo fyrirtæki geti flust til Hafnarfjarðar og fyrirtæki í bænum geti þróast áfram. Stuðningur við nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi er einnig lykilatriði í stefnu Samfylkingarinnar í atvinnumálum. Jafnaðarmenn vita hversu mikilvægt samspil öflugs atvinnulífs og velferðarkerfis er, eitt getur ekki án hins verið.

Hafnarfjörður á að vera eftirsóknarverður áfangastaður fyrir ferðamenn og við viljum skerpa á ímynd Hafnarfjarðar fyrir ferðamenn. Við eigum útivistarperlur í upplandi bæjarins sem þarf að hlúa að og byggja upp og Krýsuvíkursvæðið er orðið vinsæll áningarstaður ferðamanna á leið þeirra um Reykjanes. Byggja verður upp innviði til þess að styðja enn betur við þessa þróun.

Á næstu fjórum árum ætlum við að:

  • móta atvinnustefnu þar sem markmiðið er að styðja við atvinnulífið í bænum og laða ný fyrirtæki í bæinn og að ávallt sé leitast við að stilla álögum í hóf.
  • efla samstarf við fulltrúa atvinnulífs í bænum með það að markmiði að tryggja gagnkvæmt upplýsingastreymi.
  • efla samstarf bæjarins og Markaðsstofu Hafnarfjarðar og tryggja sýnileika starfsemi Markaðsstofunnar gagnvart fyrirtækjum bæjarins eins vel og mögulegt er.
  • styðja við frumkvöðlastarfsemi á sviði atvinnu-, menningar- og ferðamála.
  • efla samvinnu bæjaryfirvalda við fyrirtæki og samtök í bænum á sviði ferðaþjónustu svo vinna megi að leiðum til þess að ferðamenn stoppi lengur í bænum, m.a. þeir ferðamenn sem koma með skemmtiferðaskipum til Hafnarfjarðar.
  • auka samvinnu við fyrirtæki í bænum í tengslum við bæjarhátíðir, eins og Heima, Hjarta Hafnarfjarðar og Jólaþorpið, til þess að auka enn frekar lífið í kringum hátíðirnar og möguleika fyrirtækja.
  • vinna að uppbyggingu ferðaþjónustu í sátt við náttúruna á Krýsuvíkursvæðinu en fjöldi ferðamanna sækir svæðið heim í dag og nauðsynlegt að byggja upp innviði og þjónustu þar.
  • tryggja öfluga starfsemi tjaldstæðis í bænum þannig að hægt sé að taka við ferðamönnum sem vilja sækja okkur heim, t.a.m Íslendingum á ferð með ferðavagna um landið.
  • efla markaðssetningu á Hafnarfirði sem áhugaverðum stað fyrir ferðamenn til að heimsækja allt árið um kring þar sem lögð er áhersla á sérstöðu bæjarins.
  • gera Hafnarfjörð að fyrirmyndarsveitarfélagi hvað varðar atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og fólks með skerta starfsgetu, bæði hjá sveitarfélaginu sjálfu sem og á almennum vinnumarkaði.
  • áfram verði unnið að gerð nýrrar hafnar í Straumsvík þannig að hefðbundin hafnsækin starfsemi geti flutt starfsemi sína þangað sem opnar um leið tækifæri fyrir nýja uppbyggingu annars konar hafnsækinnar starfsemi á núverandi hafnarsvæði.

2. Iðandi menningarlíf

Bær sem hlúir að menningu, mannlífi og listsköpun er blómstrandi bær. Því vill Samfylkingin gera menningu og listum hátt undir höfði. Við stöndum vörð um menningarstofnanir bæjarins og styðjum markvisst við frumkvæði og nýsköpun á menningarsviðinu.

Hafnarfjörður á líka að vera bær sem styður við líflegt og fjölbreytt menningarlíf þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Á næstu fjórum árum ætlum við að:

reisa nýtt tónlistar- og menningarhús í Hafnarfirði í samstarfi við þá aðila sem vinna að menningarmálum í Hafnarfirði.

leysa húsnæðisvanda leikfélaga í bænum.

móta nýja menningarstefnu í samráði við listafólk og aðra sem vinna að menningarmálum í bænum og íbúa þar sem verði hugað að virkri þátttöku íbúa, t.d. í vetrarfríum skóla.

tryggja fleiri valmöguleika fyrir popup viðburði í bænum.

halda áfram að styðja og efla bæjarhátíðir, eins og Heima, Hjarta Hafnarfjarðar og Jólaþorpið, bæði fyrir Hafnfirðinga sem og til þess að draga gesti úr nágrannasveitarfélögum í heimsókn því það styður við atvinnustarfsemi í bænum.

virkja miðbæinn enn frekar og halda áfram að skipuleggja miðbæinn með áherslu á öflugt mannlíf og fjölbreytta afþreyingu.

finna rými fyrir vinnustofu ungra listamanna.

3. Opin stjórnsýsla og íbúalýðræði

Kerfið er til fyrir fólkið og meginverkefni þess er að þjónusta bæjarbúa. Kjörnir fulltrúar eru kosnir til þjónustustarfa fyrir bæjarbúa og það er þeirra að sjá til að þess að stjórnsýslan og stjórnkerfið þjóni fólkinu. Við innleiðingu stafrænnar þjónustu hjá bæjarfélaginu er mikilvægt að tekið sé mið af þessu grundvallarsjónarmiði.

Samfylkingin vill traustan og ábyrgan rekstur bæjarfélagsins með réttri forgangsröðun. Ábyrg fjármálastjórn með réttri forgangsröðun er forsenda þess að hægt sé að vinna markvisst að nauðsynlegum framkvæmdum í bænum. 

Áhersla á opin og lýðræðisleg vinnubrögð er grunnstoð í stefnu Samfylkingarinnar.  Lýðræðið snýst ekki bara um kosningar á fjögurra ára fresti. Bæjarstjórn verður að tryggja íbúum möguleika til áhrifa á stefnumótun bæjarins milli kosninga og þar gegnir virkt íbúasamráð lykilhlutverki. Samfylkingin telur einnig að íbúakosningar um stór og brýn mál sem varða hagsmuni bæjarbúa séu mikilvægur hluti stjórnsýslu bæjarstjórnar.

Á árunum 2002-2014 var komið á fót Öldungaráði, Ungmennaráði og Samráðshópi í málefnum fatlaðs fólk. Önnur sveitarfélög fylgdu í kjölfarið og nú hefur einnig verið stofnað Fjölmenningarráð. Ráðgjafaráðin eru mikilvæg og Samfylkingin ætlar að auka vægi þeirra. 

Á næstu fjórum árum ætlum við að:

tryggja virkt íbúasamráð með því að fá íbúa fyrr að borðinu í allri skipulagsvinnu og annarri stefnumótun bæjarins.

tryggja hverfasamráð, t.d. með því að halda reglulega hverfafundi.

styðja markvisst við frjálsa fjölmiðla í bænum.

vinna að aukinni kjörsókn í bæjarfélaginu m.a. með því að fjölga kjörstöðum í bænum.

auka vægi ráðgjafaráða í stjórnsýslu bæjarins.

tryggja góða upplýsingamiðlun frá bæjarfélaginu með fjölbreyttum hætti, t.d. í gegnum vef og samfélagsmiðla bæjarins og leggja áherslu á að ná til nýrra íbúa og nýrra Íslendinga í bænum.

innleiða skilvirkar leiðir fyrir íbúa til að koma á framfæri kvörtunum vegna þjónustu og svara erindum skilmerkilega og fljótt og vel.

auka aðkomu bæjarbúa að ákvarðanatöku bæjarins m.a. með því að stórefla verkefni eins og Betri Hafnarfjörður.

vanda til allra innkaupa og útboðsmála á vegum bæjarins með því að efla innkauparáð og bæta eftirlit með öllum innkaupum bæjarins.