Stórbættar samgöngur og skipulag á forsendum mannlífs

1. Stórbættar samgöngur

Samfylkingin setur nauðsynlegar úrbætur í samgöngumálum í forgang. Íbúar eiga að komast greiðlega um bæinn og þeir eiga að geta nýtt sér fjölbreytta ferðamáta. Við ætlum að minnka skutlið með því að ungmenni fái frítt í strætó að 18 ára aldri og styðja þannig við almenningssamgöngur og vinna með því í þágu umhverfis- og loftslagsmála.

Samfylkingin ætlar að tryggja nauðsynlegar samgönguframkvæmdir á Reykjanesbraut frá N1 hringtorgi í átt að Kaplakrika, við Suðurhöfn í ljósi komu nýs Tækniskóla á svæðið og uppbyggingar nýrrar íbúðabyggðar og löngu tímabærar endurbætur á Flóttamannavegi. Hafnfirðingar þekkja umferðarhnútana vel á þessum stöðum og þá verður að leysa strax.

Það er svo sannarlega verk að vinna í samgöngumálum í Hafnarfirði og framkvæmdir þola enga bið!

Á næstu fjórum árum ætlum við að:

  • fara í nauðsynlegar samgönguúrbætur á Reykjanesbraut frá N1 hringtorgi í átt að Kaplakrika.
  • fara í nauðsynlegar samgönguúrbætur við Suðurhöfn til þess að tryggja það að svæðið geti örugglega tekið við nýjum Tækniskóla og nýrri íbúðabyggð.
  • halda áfram að ýta á löngu tímabærar endurbætur á Flóttamannaveginum.
  • efla almenningssamgöngur með Borgarlínu og öflugu innanbæjarkerfi strætó.
  • ráðast strax í aðgerðir til að bæta umferðaröryggi gangandi vegfarenda yfir Reykjavíkurveg.
  • minnka skutlið í bænum og gera strætó gjaldfrjálsan fyrir börn og ungmenni að 18 ára aldri.
  • standa vörð um næturstrætó sem komið var á að frumkvæði Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.
  • bæta hjóla- og göngustígakerfi bæjarins og tryggja betri tengingar til nærliggjandi sveitarfélaga, þannig að hjólreiðafólk komist með sem einföldustum hætti alla leið til Reykjavíkur.
  • berjast fyrir opnun Bláfjallavegar.
  • tryggja að Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar hafi ávallt greiðan aðgang að besta fáanlega tækjabúnaði vegna snjómoksturs og að starfsemin verði styrkt til hagsbóta fyrir alla bæjarbúa.
  • bæta vetrarþjónustu í hverfum bæjarins og hvetja þannig til þess að börn og fullorðnir geti farið styttri ferðir gangandi eða hjólandi allt árið.

2. Skipulag á forsendum iðandi mannlífs og grænn bær

Samfylkingin vill byggja upp bæ sem er skipulagður með þarfir fólks í huga þar sem atvinna, menning og mannlíf fá að blómstra. Við ætlum að byggja upp bæ þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta húsnæðisuppbyggingu. Til þess að það verði að veruleika þarf að vera nægt lóðaframboð og skipulag sem gerir ráð fyrir fjölbreyttri uppbyggingu fyrir unga sem aldna, fyrstu kaupendur, tekjulægri hópa og aðra.

Það er þörf á stórátaki í húsnæðismálum bæjarins og við ætlum okkur að standa fyrir því, m.a. í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög, önnur félög sem stuðla að fjölbreyttri uppbyggingu og ríkið.

Samfylkingin er umhverfisflokkur sem leggur áherslu á öflugt atvinnulíf og nýsköpun í sátt við náttúruna. Mikilvægt er að fylgja eftir áætlunum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Við munum beita okkur í þágu umhverfisvænna og sjálfbærra lausna og ganga fram með góðu fordæmi í umhverfismálum. Við viljum bæ sem stendur vörð um náttúruperlur í upplandi bæjarins á sama tíma og íbúar geta notið þeirra með öruggum hætti.

Skipulag á forsendum mannlífs

Lífsgæði íbúa og iðandi mannlíf eru í forgangi þegar kemur að skipulagi. Horfa þarf á heildarmyndina jafnt sem mannleg smáatriði í umhverfinu þegar ný hverfi eru skipulögð og eldri svæðum breytt. Mikilvægt er að hugað að eflingu miðbæjarins á sama tíma og við varðveitum gömlu bæjarmyndina.

Skipulag þarf að vera fjölbreytt, bæði hvað varðar nýtingu lóða innan hverfa og eins íbúðagerða innan lóða. Stuðla þarf að jöfnu framboði lóða til nýbygginga, bæði með þéttingu byggðar og nýjum hverfum. Nauðsynlegt er þó að tryggja að þétting skerði ekki lífsgæði þeirra íbúa sem fyrir eru. Einnig verður skipulagið að taka mið af fjölbreyttum og ólíkum þörfum og Samfylkingin telur mikilvægt í allir skipulagsvinnu verði unnið eftir hugmyndafræði algildrar hönnunar og aðgengi allra verði tryggt.

Samfylkingin leggur áherslu á lýðræðislega þátttöku íbúa, aukið aðgengi fólks að ákvarðanatöku og samráði við íbúa áður en ákvarðanir eru teknar og gagnsæi í allri ákvarðanatöku í skipulagsmálum.

Á næstu fjórum árum ætlum við að:

  • skipuleggja lóðir undir fjölbreytta uppbyggingu hagkvæms húsnæðis fyrir ungt fólk, fyrstu kaupendur, námsmenn, tekjulægri hópa og eldra fólk.
  • fara í samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög á vegum verkalýðshreyfingarinnar enda hefur reynslan sýnt að slík uppbygging er besta leiðin til að ná niður leiguverði fyrir tekjulægri hópa.
  • halda áfram að vinna að uppbyggingu nýrrar hafnar í Straumsvík til að tryggja vöxt hafnsækinnar atvinnustarfsemi í bænum á sama tíma og við drögum úr umferð þungaflutninga í gegnum bæinn.
  • tryggja fjölbreytt framboð lóða til að stuðla að uppbyggingu húsnæðis fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur sem og til þess byggja upp öruggan leigumarkað.
  • hugað er að nýjum svæðum innan bæjarmarka til íbúðaruppbyggingar t.d. í Óttarsstaðalandi í samræmi við hættumat vegna vegna hraunavár á höfuðborgarsvæðinu.
  • vinna að útvíkkun vaxatamarka svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins.
  • halda áfram þéttingu byggðar þar sem þess er kostur enda styður hún við ýmis mikilvæg verkefni t.d. uppbyggingu hvers kyns þjónustu og almenningssamgangna.
  • flýta ferli við uppbyggingu á þéttingarreitum eins og Hraun vestur.
  • efla mannlíf í miðbænum og varðveita bæjarmyndina.
  • halda áfram að bæta hjóla- og göngustíga innan bæjarmarkanna sem og að gera betri tengingar við upplandið og nærliggjandi sveitarfélög.
  • ljúka skipulagi vegna Suðurhafnar og tryggja að lausnir verði fundnar á umferðar- og samgöngumálum á svæðinu, þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttum ferðamátum.
  • hefja vinnu við skipulag Vatnshlíðar sem hafi það að markmiði að móta byggð með fjölbreyttri þjónustu fyrir alla aldurshópa í sátt við umhverfið.

Grænn og umhverfisvænn bær

Samfylkingin er umhverfisvænn flokkur sem leggur áherslu á öflugt atvinnulíf og nýsköpun í sátt við náttúruna. Við viljum bæ sem stendur vörð um náttúruperlur í upplandi bæjarins á sama tíma og íbúar geta notið þeirra með öruggum hætti.

Liður í því að setja umhverfis- og loftslagsmál í öndvegi eru bættar almenningssamgöngur enda mikilvægt að mæta vaxandi bílaumferð með öðrum valkostum og brýnt að framkvæmdum við Borgarlínu á höfuðborgarsvæðinu ásamt stofnleiðum fyrir hjólreiðar verði flýtt eins og kostur er. Gera verður ólíkum ferðmátum jafn hátt undir höfði. Það er auk þess mikilvægur þáttur í bættri lýðheilsu.

Stefnt er að uppbyggingu í Vatnshlíð á næstu árum. Hún er í nánd við útivistarperlur í upplandi Hafnarfjarðar og  óspillta náttúru og mikilvægt að lágmarka umhverfisáhrif eins og kostur er með vistvænni byggð sem stuðlar að aukinni vellíðan og heilsu fólks.

Á næstu fjórum árum ætlum við að:

  • fjölga grænum svæðum og huga betur að þeim sem fyrir eru, þar sem hægt er stunda útivist og heilsurækt enda er Hafnarfjörður heilsubær.
  • búa til fjölskylduvæn leiksvæði á fleiri stöðum í bænum, m.a. í miðbænum.
  • setja aukinn kraft í grænkun Valla og gera almenningsgarð fyrir alla fjölskylduna á Völlunum.
  • endurskoða umhverfisstefnu bæjarins á tveggja ára fresti.
  • ná raunverulegum árangri í loftslagsmálum og vinna eftir markvissri og aðgerðabundinni umhverfisstefnu þar sem forgangsröðun verkefna er skýr og vel fjármögnuð og stefnt að sjálfbærni.
  • reka öfluga umhverfisvöktun með hágæðamælingum á mengun í umhverfinu.
  • fjölga hvötum til bygginga á umhverfisvottuðum byggingum og stefna því að nýbyggingar á vegum bæjarins og endurbætur séu umhverfisvottaðar.
  • setja fram metnaðarfulla stefnu um verndun vatnsbóla í upplandi Hafnarfjarðar.
  • skipuleggja almenningsgarð á Hörðuvöllum og mynda samfellt grænt svæði í gegnum bæinn meðfram Læknum með áherslu á bekki, æfinga- og leiktæki og aðra möguleika til samveru.
  • standa betur að fegrun og hreinsun um allan bæ, fjölga ruslatunnum með flokkun og stuðla að betri umhirðu þeirra -  Hreinn bær okkur kær.
  • fjölga rafhleðslustöðvum í bænum og rafvæða bílaflota bæjarfélagsins.
  • standa vörð um náttúruperlur í upplandi Hafnarfjarðar.
  • bæta aðstöðu fyrir útivistarfólk og aðgengi að náttúruperlum þannig að allir íbúar fái notið þeirra.
  • bæta aðstöðu við Hvaleyrarvatn með því að koma gildandi skipulagi í framkvæmd með fleiri bílastæðum, betri aðkomu og umgjörð til útivistar við vatnið.
  • efla Krýsuvík sem útivistar- og ferðamannasvæði með frekari uppgræðslu í góðri samvinnu við opinbera aðila, frjáls félagasamtök og sjálfboðaliða sem og stöðva alla sauðfjárbeit í bæjarlandinu.
  • útrýma plasti í starfsemi bæjarfélagsins svo bærinn fari þar fram með góðu fordæmi.
  • minnka kolefnis- og vistspor sveitarfélagsins með kolefnisjöfnun og fræðslu með áherslu á sjálfbærni.
  • halda áfram að fegra og bæta Hellisgerði og efla sem almenningsgarð fyrir Hafnfirðinga og gesti.