Lifandi bær fyrir okkur öll
1. Hlúum að fólkinu sem byggði landið
Samfylkingin hlúir að fólkinu sem byggði bæinn og landið. Það er skylda okkar jafnaðarfólks að tryggja öryggi og mannvirðingu allra á efri árum. Ekki síst er þetta mikilvægt þegar heilsan brestur eftir langa ævi.
Samfylkingin ætlar einnig að leita leiða til þess að spyrna gegn félagslegri einangrun meðal eldra fólks í samvinnu við félagasamtök eldra fólks í bænum.
Samfylkingin ætlar að stórefla þjónustu við eldra fólk í heimahúsum og að loknum kosningum ætlum við strax að hefja uppbyggingu lífsgæðaíbúða fyrir eldra fólk á Sólvangssvæðinu. Í samstarfi við ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ætlum við svo að fjölga hjúkrunarrýmum með því að ljúka uppbyggingu á þeim stöðum sem hafa verið í undirbúningi á undanförnum árum.
Á næstu fjórum árum ætlum við að:
- styðja við virkni eldri bæjarbúa í samfélaginu, fjölga tækifærum þeirra til félagslegra samskipta og tryggja þeim heilsueflandi umhverfi.
- stórefla þjónustu við eldra fólk í heimahúsum með því að bjóða samfellda þjónustu með samþættingu heimaþjónustu, heimahjúkrunar og öldrunaráðgjafar sem fylgir þörfum hvers í eins.
- tryggja eldra fólki og fjölskyldum þeirra handleiðslu og styðja við virkni og grípa þannig fólkið fyrr sem þarf frekari þjónustu.
- hefja þegar í stað undirbúning uppbyggingar lífsgæðaíbúða á Sólvangssvæðinu og móta uppbyggingaráætlun til framtíðar.
- auka samráð við eldra fólk í Hafnarfirði um málefni sem að þeim snúa m.a. með auknu samstarfi við Félag eldri borgara í Hafnarfirði og með því að styrkja umgjörð öldungaráðs og efla starfsemi þess.
- tryggja fjölgun hjúkrunarrýma í bænum þar sem stefnt verði að því að ljúka við uppbyggingu hjúkrunarheimila í Hamranesi, Hrafnistu og í Vatnshlíð.
- standa vörð um og efla tómstundastyrk eldri borgara til þess að styðja við virkni eldra fólks.
Ný heilsugæslustöð á Vellina
Samfylkingin ætlar að koma upp nýrri heilsugæslustöð á miðsvæði Valla á næsta kjörtímabili sem þjóni nýjustu hverfum bæjarins; Völlum, Hamranesi, Skarðshlíð og Áslandi. Heilsugæslan í Hafnarfirði er komin að þolmörkum og löngu orðið tímabært að brugðist verði við því.
2. Húsnæðismál eru velferðarmál
Eitt stærsta verkefni jafnaðarmanna frá upphafi eru húsnæðismál enda er það grundvallaratriði í stefnu Samfylkingarinnar að tryggja húsnæðisöryggi allra. Nauðsynlegt er að ráðast í kraftmikla og fjölbreytta húsnæðisuppbyggingu fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur, eldri íbúa, námsmenn og tekjulægri hópa í samfélaginu.
Þetta verður gert með því að fjölga íbúðum sem falla undir skilyrði hlutdeildarlána og með samstarfi við byggingarfélög eldri borgara, námsmanna og óhagnaðardrifin leigufélög á vegum verkalýðshreyfingarinnar, eins og Bjarg.
Það hefur sýnt sig að raunhæfasta leiðin til þess að ná niður leiguverði fyrir tekjulægri hópa samfélagsins er markviss uppbygging í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög. Hluti húsnæðispakka Samfylkingarinnar verður að ráðast í uppbyggingu lífsgæðaíbúða fyrir eldri íbúa á völdum stöðum í bænum. Samhliða þessu verður að ráðast í stórátak í uppbyggingu húsnæðis fyrir fólk með fötlun með nýjum íbúðakjörnum og stuðningi við sjálfstæða búsetu. Einnig verður að fjölga félagslegum íbúðum hjá bænum og grípa til raunhæfra aðgerða í þágu heimilislausra.
Á næstu fjórum árum ætlum við að:
- ráðast í kraftmiklar aðgerðir í húsnæðismálum með því að stórauka samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög og bjóða upp á fjölbreytt og hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk, fyrstu kaupendur, eldri íbúa, fólk með fötlun, tekjulága og fólk með millitekjur.
- stuðla að öruggari og betri leigumarkaði með öflugu og markvissu samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög á vegum verkalýðshreyfingarinnar, eins og Bjarg fyrir tekjulægri fjölskyldur og byggngarfélög stúdenta og eldri borgara.
- hefja þegar í stað undirbúning uppbyggingar lífsgæðaíbúða fyrir eldra fólk á Sólvangssæðinu og móta uppbyggingaráætlun til framtíðar.
- fjölga félagslegum íbúðum sveitarfélagsins, stytta biðlista og biðtíma.
- tryggja úrræði fyrir heimilislausa í húsnæðismálum.
- stytta biðlista og biðtíma eftir húsnæði fyrir fatlað fólk með því að fjölga íbúðakjörnum og efla stuðning við sjálfstæða búsetu.
3. Virðing fyrir sjálfsákvörðunar-réttinum
Velferðarstefna jafnaðarmanna hvílir á félagslegu réttlæti og jöfnuði. Öflug velferðarþjónusta er forsenda réttláts samfélags og hún skapar öryggi og efnahagslegan stöðugleika. Leiðarljós velferðarþjónustu bæjarins á vera virðing fyrir sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétti hvers einstaklings og að muna að kerfið er til fyrir fólkið en ekki öfugt.
Samfylkingin leggur áherslu á að stjórnsýsla bæjarins og þjónusta eigi náið samráð við þá aðila sem nýta sér velferðarþjónustu sveitarfélagsins. Þess vegna leggjum við áherslu á að hagsmuna- og notendaráð bæjarins; öldungaráð, fjölmenningarráð og samráðshópur í málefnum fatlaðs fólks verði efld og umgjörð þeirra bætt.
Í málefnum fólks með fötlun viljum við halda í heiðri kjörorðum ÖBÍ - Ekkert um okkur án okkar. Samfylkingin vill að Hafnarfjörður vinni markvisst að innleiðingu Samnings Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Samfylkingin leggur áherslu á að Hafnarfjörður leiti ávallt allra leiða til þess að tryggja inngildingu nýrra Íslendinga þannig að þeir geti tekið fullan þátt í samfélaginu og í þeim efnum gegnir aðgengi að íslensku- og móðurmálsnámi lykilhlutverki.
Á næstu fjórum árum ætlum við að:
- gera stórátak í húsnæðismálum fólks með fötlun með því að fjölga markvisst íbúðakjörnum og styðja við sjálfstæða búsetu fólks með fötlun í félagslegu húsnæði á vegum Hafnarfjarðar.
- halda áfram að fjölga NPA samningum og tryggja að taxtar verði hækkaðir til samræmis við útreikninga NPA miðstöðvarinnar.
- gera Hafnarfjörð að fyrirmyndarbæ í aðgengismálum þannig að bærinn verði aðgengilegur fyrir alla.
- vinna að innleiðingu Samnings Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
- auka aðgengi nýrra Íslendinga að íslensku- og móðurmálsnámi.
- leita leiða til þess að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendu bergi brotin í skipulögðu frístundastarfi.
- leita leiða til þess að auka þátttöku eldra fólks af erlendu bergi brotið í hvers kyns félagsstarfi.
- efla bókasafn Hafnarfjarðar sem samfélagsmiðstöð til að vinna gegn félagslegri einangrun og styðja við heilsueflandi samfélag.
- tryggja öfluga akstursþjónustu fyrir fólk með fötlun og eldra fólk.
- endurskoða sérstakan húsnæðisstuðning reglulega þannig að hagsmunir leigjenda séu alltaf tryggðir.
- tryggja markvissa fjárhagsaðstoð til einstaklinga þar sem markmiðin eru að styðja fólk til sjálfsbjargar, gera því kleift að framfleyta sér og sínum og stuðla að valdeflingu þeirra.