Þörf á breytingum í Hafnarfirði
Það er þörf á breytingum í Hafnarfirði! Á kjörtímabilinu hefur Samfylkingin sett brýn hagsmunamál Hafnfirðinga á dagskrá og lagt fram fjölbreyttar tillögur sem allar miða að því að bæta hag bæjarbúa. Við höfum starfað með almannahag að leiðarljósi og það munum við gera á næsta kjörtímabili í meirihluta undir forystu jafnaðarfólks fáum við til þess umboð kjósenda.
Skýr stefna sem byggir á fjölbreyttu og virku samráði
Við leggjum nú fram ítarlega stefnuskrá þar sem við nálgumst stór og smá viðfangsefni af skilningi og raunsæi. Stefnan byggir á vinnu og málflutningi okkar í bæjarstjórn á kjörtímabilinu og fjölbreyttu og virku samráði við íbúa og atvinnulíf bæjarins og frjáls félagasamtök.
Haldnir voru opnir málefnafundir sem voru vel sóttir, félagasamtök og fyrirtæki heimsótt og íbúar sendu okkur hugmyndir og ábendingar í gegnum netið. Viðtökurnar voru frábærar og okkur barst fjöldinn allur af frábærum tillögum og ábendingum frá íbúum, atvinnulífi og félagasamtökum. Stefnan byggir einnig á metnaðarfullri vinnu Samfylkingarinnar á landsvísu þar sem daglega lífið var sett í forgrunn og markmiðið var að einfalda daglegt líf fólks og útspil flokksins á grunni þeirrar vinnu nefnist
Tökum ábyrgð hvert á öðru
Það má því með sanni segja að stefnan sé unnin í samræmi við það hvernig Samfylkingin mun vinna í bæjarstjórn; fyrir fólkið og með fólkinu!
Forgangsröðun í þágu íbúa
Traustur og ábyrgur rekstur er forsenda góðrar þjónustu í þágu íbúa og nauðsynlegra framkvæmda. Þar skiptir rétt forgangsröðun öllu máli. Samfylkingin setur börn og ungmenni í fyrsta sæti þar sem við ætlum að lækka kostnað barnafólks og tryggja öflugt starf í leik- og grunnskólum bæjarins sem veitir börnum og ungmennum þann stuðning sem þau þurfa. Sömuleiðis forgangsraðar jafnaðarfólk í þágu eldra fólks, fólksins sem byggði bæinn og landið, með eflingu heimaþjónustu, uppbyggingar lífsgæðaíbúða og fjölgun hjúkrunarrýma.
Bærinn á að vera skipulagður á forsendum fólks og iðandi mannlífs og í sátt við umhverfið. Húsnæðismál eru velferðarmál og því á húsnæðisuppbygging að vera fjölbreytt. Það þarf m.a. að gerast með auknu samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög og í þeim efnum ætlar Samfylkingin sérstaklega að huga að uppbyggingu fyrir ungt fólk, fyrstu kaupendur, tekjulægri hópa og uppbyggingu lífsgæðaíbúða fyrir eldra fólk.
Framkvæmdir í samgöngumálum þola enga bið og Samfylkingin setur nauðsynlegar úrbætur í samgöngumálum í forgang. Þar er um að ræða löngu tímabærar úrbætur í vegamálum, eflingu almenningssamgangna og uppbygging göngu- og hjólastíga. Hafnfirðingar eiga að komast greiðlega um bæinn með fjölbreyttum ferðamátum.
Hafnarfjörður á að styðja við atvinnulífið og auðvelda rekstur og uppbyggingu með einföldun regluverks. Samhliða á Hafnarfjörður að vera lifandi menningarbær sem laðar til sín listafólk, ferðamenn og aðra gesti.
Samfylkingin ætlar að byggja upp bæ sem forgangsraðar í þágu fólksins þar sem við tökum ábyrgð hvert á öðru. Við erum sterkari saman!
Samfylkingin er tilbúin
Þörf er á breytingum við stjórn Hafnarfjarðar. Samfylkingin er tilbúin til að taka við stjórn bæjarins að loknum kosningum 16. maí nk. Við leggjum nú fram ítarlega og skýra stefnuskrá, sem unnin er í víðtæku samráði við íbúa, atvinnulíf og félagasamtök og erum tilbúin að ganga í verkin á grunni hennar.
Bæjarbúar munu strax skynja þann sóknarhug sem mun fylgja nýjum stjórnarháttum þegar jafnaðarfólk tekur við stjórn bæjarins. Það er hægt að taka mark á orðum okkar og við ætlum að láta verkin tala. Við bendum með stolti á verk jafnaðarfólks fyrr og síðar í Hafnarfirði og óskum eftir stuðningi kjósenda til þess að stýra Hafnarfirði á forsendum jafnaðarstefnunnar á nýjan leik í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi.