Málefni barna og ungmenna í fyrsta sæti
1. Lækkum kostnað barnafólks
Samfylkingin léttir daglega lífið hjá barnafólki. Þegar reikningarnir eru þyngstir og brasið mest þá er mikilvægast að fjölskyldan fái stuðning frá samfélaginu. Þess vegna ætlar Samfylkingin að lækka kostnað barnafjölskyldna á næsta kjörtímabili.
Á næstu fjórum árum ætlum við að:
- setja þak á leikskólagjöld og 100% systkinaafslátt svo engin fjölskylda greiði meira en 50 þús. kr. á mánuði fyrir 40 tíma leikskólaviku (dvalargjald og fæðisgjald) - en tekjulægri greiði minna.
- leita leiða til að tryggja dagvistun eftir að fæðingarorlofi lýkur og jafna kostnað foreldra óháð formi dagvistunar.
- veita börnum og ungmennum að 18 ára aldri gjaldfrjálsan aðgang að strætó og einfalda líf barnafólks með því að minnka skutlið.
- hækka frístundastyrkinn strax upp í 75 þús. kr. til þess að ýta undir virka þátttöku í skipulögðu frístundastarfi og sjá til þess að Hafnarfjörður sé ávallt í forystu í þessum efnum.
2. Velferð barna og ungmenna í forgang
Samfylkingin ætlar að stórefla geðheilbrigðismál barna og ungmenna og tryggja að þau fái nauðsynlegan stuðning frá stoðkerfinu. Hafnarfjörður á einfaldlega að skipa sér í forystu í þessum málum og tryggja að starfsfólk bæjarins hafi þjálfun og úrræði til að leysa verkefnin vel af hendi.
Við viljum efla velferð barna og unglinga með heildrænni nálgun á líðan, tengsl og þroska. Þjónustan við börn og fjölskyldur á að vera þrepaskipt þannig að rétt þjónusta berist á réttum tíma. Léttari stuðningur sé aðgengilegur snemma og þyngri sérfræðiþjónusta til staðar þegar þörf krefur. Við viljum auka sálfræðiþjónustu í skólum, efla stoðþjónustu fagfólks í skólunum og draga markvert úr biðlistum svo börn og ungmenni fái hjálp þegar þau þurfa á henni að halda.
Á næstu fjórum árum ætlum við að:
- auka sálfræðiþjónustu og stoðþjónustu í skólum og draga markvert úr biðlistum eftir þjónustu.
- efla þrepaskipta þjónustu sem byggir á lögum um farsæld barna m.a. með því að auka úrræði og gera aðgengilegri við hegðunar- og tilfinningavanda barna.
- grípa fyrr inn í þegar börn glíma við fjölþættan vanda með teymisvinnu fagmanna þvert á skóla og þjónustu með því að efla þjónustu í samræmi við lög um farsæld barna.
- vinna eftir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem er m.a. kveðið á um að áhrif á börn verði metin í öllum ákvörðunum og stefnumótun.
- tryggja að eineltisáætlanir skóla séu sýnilegar nemendum, foreldrum og forráðamönnum og að unnið sé eftir þeim.
- festa í sessi samþætta þjónustu í þágu farsældar barna sem tryggir samstarf á milli sviða og fagaðila sem koma að þjónusta barns.
- tryggja að barnaverndarþjónusta Hafnarfjarðar sé eins vel fjármögnuð og mönnuð og mögulegt er til að takast á við þau mál sem henni berast.
- auka upplýsingagjöf um stuðning í boði fyrir tekjulágar fjölskyldur og móta aðgerðaáætlun í þágu barna sem búa við fátækt og auka upplýsingagjöf um stuðning í boði fyrir tekjulágar fjölskyldur.
- tryggja aðgengi ungs fólks að vinnu- og virkniúrræðum.
3. Framúrskarandi skólastarf
Menntastefna Samfylkingarinnar byggir á jöfnuði, félagslegu réttlæti og mannréttindum allra nemenda. Skólarnir eru grunnstoð samfélagsins og þar leggjum við grunn að jöfnum tækifærum barna og ungmenna til menntunar og þroska.
Við eflum skóla best með því að treysta fagfólki og virkja þann mannauð og sköpunarkraft sem býr í hverju skólasamfélagi. Þess vegna viljum við auka faglegt sjálfstæði skóla og veita þeim raunverulegt svigrúm til að móta eigið starf. Sjálfstæði verður þó ávallt að haldast í hendur við öflugt stuðningskerfi sem tryggir jafnræði og gæði í þjónustu við nemendur.
Við leggjum áherslu á bætt starfsumhverfi kennara og annars starfsfólks skóla. Auknar kröfur, fjölbreyttari nemendahópar og vaxandi verkefni kalla á markvissan stuðning, skýra verkaskiptingu og aðgengi að sérfræðiþjónustu. Við munum efla stoðþjónustu við skóla, tryggja betri aðgang að sérfræðingum og stytta bið eftir greiningu og viðeigandi úrræðum.
Strax að loknum kosningum ætlum við hefja undirbúning að stækkun Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og leysa úr húsnæðisvanda hans til framtíðar.
Ákvarðanir um skólastarf skulu teknar í nánu samráði við fagfólk og byggja á þekkingu, reynslu og rannsóknum. Við viljum jafnframt stuðla að nýsköpun í skólastarfi og skapa faglegt umhverfi sem laðar að og heldur í öflugt starfsfólk á öllum skólastigum.
Við viljum skóla sem byggir á lýðræði, mannréttindum og jafnrétti; skóla sem fagnar fjölbreytileika og mætir öllum börnum þar sem þau eru stödd. Efnahagur má aldrei ráða möguleikum til menntunar. Allir nemendur eiga rétt á jöfnum tækifærum og virkri þátttöku í eigin námi og skólasamfélagi.
Skóli án aðgreiningar er leiðarljós okkar. Til að hann verði að veruleika þarf að tryggja snemmtækan og markvissan stuðning við nemendur, með stigvaxandi úrræðum sem mæta þörfum þeirra hverju sinni. Jafnframt þarf að styðja við starfsfólk þegar verkefni verða umfangsmikil eða fara út fyrir þeirra fagsvið.
Í samstarfi við ríkisvaldið viljum við styrkja umgjörð leikskólans með því að lögfesta réttinn til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi. Þannig brúum við raunverulega bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla líkt og gert hefur verið á hinum Norðurlöndunum.
Markmið okkar er skýrt: að byggja upp menntakerfi sem er réttlátt, öflugt og sveigjanlegt og tryggir öllum börnum raunveruleg tækifæri til að vaxa, læra og blómstra.
Á næstu fjórum árum ætlum við að:
- auka stöðugildi deildarstjóra stoðþjónustu sem ber ábyrgð á skipulagningu og samhæfingu á stuðningi við nemendur með sérþarfir.
- styðja skóla markvisst við að innleiða þrepaskiptan stuðning í námi, með snemmtækri íhlutun og markvissum úrræðum.
- efla faglega þjónustu Mennta- og lýðheilsusviðs þannig að starfsfólk skóla hafi aðgang að þeim verkfærum, ráðgjöf og stuðningi sem þarf til að mæta þörfum nemenda.
- bæta starfsumhverfi í skólum og tryggja faglegt umhverfi sem laðar að og heldur í öflugt starfsfólk, meðal annars með auknum tækifærum til menntunar og starfsþróunar og markvissum aðgerðum til að draga úr álagi.
- auka svigrúm og fjölbreytni í skólastarfi svo hægt sé að mæta styrkleikum og áhuga hvers og eins, með sérstakri áherslu á skapandi greinar, list-, verk- og tæknigreinar og frumkvöðlamennt, sérstaklega á unglingastigi.
- tryggja fræðslu um jafnrétti, kynjafræði, kynheilbrigði, samskipti, mannréttindi og málefni hinsegin samfélagsins og styðja við hinsegin börn og trans börn innan skólakerfisins.
- tryggja að tækjabúnaður nemenda og starfsfólks sé uppfærður reglulega og uppfylli kröfur nútíma kennslu og náms.
- leysa húsnæðisvanda Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og styðja þannig enn betur við öflugt og mikilvægt starf skólans.
- efla samstarf heimila og skóla og styrkja foreldraráð í sessi.
- efla nemendalýðræði, styrkja umgjörð ungmennaráðs og auka þátttöku barna og ungmenna í ákvarðanatöku.
- gera áætlun um uppbyggingu íþróttahúsa við Áslandsskóla, Hvaleyrarskóla og Öldutúnsskóla.
- halda áfram að fjölga leikskólaplássum, kanna stofnun ungbarnaleikskóla og styðja við dagforeldrakerfið á meðan beðið er eftir leikskólaplássi. Jafnframt verði unnið að því að jafna kjör foreldra óháð vistunarformi barna.
- efla móttöku og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku, með áherslu á íslenskukennslu, móðurmálsstuðning og aukinn stuðning við foreldra og forráðamenn.
- vinna markvisst að því að efla lýðræðisvitund barna og ungmenna.
4. Frístunda- og forvarnarbær
Öll börn og ungmenni eiga að geta stundað þær íþróttir og tómstundir sem þau hafa áhuga á óháð efnahag og félagslegum aðstæðum. Samfylkingin ætlar að draga úr kostnaði foreldra og forráðamanna með hækkun frístundastyrks.
Leitað verður allra leiða til að sjá til þess að öll börn og ungmenni geti nýtt frístundastyrkinn. Raunin er sú að ákveðnir hópar eru ólíklegri til að nýta hann en aðrir og það hefur sýnt sig að þátttaka barna og unglinga í skipulögðu frístundastarfi er ein öflugasta forvörn sem völ er á. Sömuleiðis verður að vinna gegn brottfalli úr frístundastarfi þegar komið er fram á unglingsárin. Við viljum einnig auka frístundastarf einstaklinga með fötlun, bæði meðal barna og fullorðinna, og stuðla að þátttöku á eigin forsendum með viðeigandi stuðningi.
Við ætlum að endurskoða forvarnarmál bæjarins frá grunni og í víðu samhengi. Núgildandi forvarnarstefna Hafnarfjarðar er frá árinu 2008 og því löngu orðið tímabært að uppfæra hana. Í því samhengi verður að auka aðgengi ungmenna að vinnu- og virkniúrræðum.
Samfylkingin ætlar að efla starfsemi félagsmiðstöðva á næstu árum til þess að tryggja nægt framboð af fjölbreyttum tómstundum. Gott aðgengi barna og unglinga að öflugum félagsmiðstöðvum, þar sem boðið er upp á fjölbreytta starfsemi og fjölbreytt hópastarf dregur úr áhættuhegðun ungmenna. Á frístundaheimilum Hafnarfjarðar fer fram mikilvægt starf sem Samfylkingin ætlar að styðja og styrkja þannig að börn í Hafnarfirði fái tækifæri til þess að upplifa framúrskarandi frístundastarf í sínu hverfi.
Við ætlum að auka samþættingu skóla- og frístundastarfs í bænum. Það verður gert með því að flétta í auknum mæli frístundastarf barna og unglinga inn í skóladag þeirra og stefnt er að því að gera skóla- og frístundadag barna og unglinga eins samfelldan og mögulegt er.
Samfylkingin leggur mikla áherslu á að efla lýðheilsu í bænum. Liður í því er að skapa aðstöðu svo hreyfing og heilbrigður lífsstíll verði hluti af daglegu lífi og mikilvægt er að flétta þessa áherslu inn í skipulagsvinnu bæjarins.
Á næstu fjórum árum ætlum við að:
- hækka frístundastyrk barna og ungmenna strax upp í 75 þús. kr. á ári og tryggja það að Hafnarfjörður sé ávallt í fararbroddi í þessum efnum.
- vinna markvisst að því að ná til barna og ungmenna af erlendum uppruna og annarra hópa sem ekki nýta sér frístundastyrkinn í nægjanlegum mæli og kynna fyrir þeim skipulagt frístundastarf og auka þannig aðgengi allra barna að frístundastarfi í bænum.
- auka þátttöku barna með sérþarfir í frístundastarfi og leita leiða til þess að þau fái þann stuðning sem þau þurfa þegar kemur að því.
- auka aðgengi fatlaðra barna að hvers kyns frístundastarfi.
- vinna að því að frístundabíllinn verði aðgengilegur fleiri aldurshópum og lögð áhersla á að hann verði aðgengilegur fyrir 12 ára börn og yngri.
- kanna möguleikann á því að taka upp íþróttastyrki í samvinnu við íþróttahreyfinguna í Hafnarfirði fyrir 19 - 23 ára iðkendur til að sporna við brottfalli.
- tryggja aðgengi fyrir fatlað fólk að íþróttamannvirkjum sem og að útivistarperlum í bæjarlandinu.
- efla starfsemi félagsmiðstöðva, fjölga fagmenntuðu starfsfólki í öllu frístundastarfi, auka opnunartíma þeirra og styðja við starfsemi þeirra þannig að þær geti boðið upp á fjölbreytta starfsemi og öflugt hópastarf.
- auka aðgengi ungs fólks að hvers kyns skapandi greinum innan bæjarins, bæði innan skólakerfisins og í frístundastarfi.
- byggja upp öflugt ungmennahús í bænum fyrir 16 til 25 ára ungmenni sem býður upp á víðtæka og faglega þjónustu við allt ungt fólk með áherslu á jaðarsett og félagslega einangruð ungmenni.
- tryggja að ungmennum verði tryggður aðgangur að vinnu- og virkniúrræðum á Selhellu í samræmi við tillögur starfshóps um framtíðarskipan félagsstarfs fyrir fólk á aldrinum 16-24 ára.
- endurskoða forvarnarstefnu Hafnarfjarðar frá grunni.
- gera stórátak í forvarnarmálum, m.a. gegn áfengi, tóbaki og nikótínvörum, eiturlyfjum og hvers kyns ofbeldi og leita leiða til þess að sporna gegn einmanaleika og félagslegri einangrun hjá ungu fólki.
- efla frístundastarf fyrir eldri borgara í samstarfi við Félag eldri borgara í Hafnarfirði m.a. til þess að sporna gegn félagslegri einangrun meðal eldri íbúa.
- útvega rými fyrir vinnustofu ungra listamanna.
- fjölga grænum svæðum m.a. á Völlunum og huga betur að þeim sem fyrir eru, þar sem hægt er stunda útivist og heilsurækt enda er Hafnarfjörður heilsubær.
- halda áfram að merkja fjölbreyttar göngu- og hjólreiðaleiðir innan Hafnarfjarðar, t.d. með auknu aðgengi með hugbúnaðarlausnum eins og appi.
- hefja undirbúning að opnun skíðabrekku fyrir börn og byrjendur í Hamranesi og vinna að opnun Skálafells í samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.
- koma upp varanlegu skautasvelli í bænum með möguleika á yfirbyggingu.
- lengja opnunartíma sundlauga á kvöldin og setja upp glervegg á útisvæði Sundhallarinnar til að auka birtu og skapa útsýni út á sjó.
- mæta þörfum íþróttafélaga um uppbyggingu aðstöðu í samræmi við forgangsröðun ÍBH.