Fulla ferð áfram í samgöngumálum

Betri borg

Samfylkingin vill byggja upp samgöngukerfi í Reykjavík sem mætir þörfum fólks og daglegu lífi þess. Markmiðið er að fólk komist leiðar sinnar á einfaldan og öruggan hátt, hafi val um ferðamáta og geti sinnt daglegum erindum sínum án óþarfa álags. Samfylkingin mun halda uppbyggingu áfram af krafti þannig að umbætur skili sér skjótt í hversdagslíf fólks. Samgöngusáttmálinn er grunnur þessarar þróunar.

1. Stöndum með samgöngu-sáttmálanum

Samfylkingin vill bæta samgöngur, stytta ferðatíma, minnka tafir og auka öryggi með því að hrinda samgöngusáttmálanum í heild sinni í framkvæmd, þar á meðal Sæbrautarstokki, Miklubrautargöngum og Borgarlínu.

  • Byggjum upp öflugar almenningssamgöngur sem veita fleirum raunhæfan valkost við einkabílinn og drögum þannig úr álagi á vegakerfið fyrir þau sem vilja keyra.
  • Flýtum undirbúningi á Miklubrautargöngum til að tryggja að þau komist í framkvæmd sem fyrst og setjum Sæbrautarstokkinn sömuleiðis í forgang til að bæta umferðarflæði.
  • Tryggjum metnaðarfulla uppbyggingu Borgarlínu svo hún verði áreiðanlegur valkostur. Við styðjum ekki hálfkák eða málamiðlanir á kostnað gæða.
  • Tryggjum gott umferðarflæði allra ferðamáta um framkvæmdasvæði og lágmarks rask fyrir íbúa og atvinnulíf á framkvæmdatíma.
Strætó, samgöngur, Reykjavík, gulur,

2. Fjölbreyttir ferðamátar fyrir fjölbreytta borg

  • Gerum Reykjavík að gönguvænni borg með göngustígum og -götum, öruggum framkvæmdum og aðlaðandi hönnun.
  • Byggjum áfram upp örugga og samfellda hjólastíga með áherslu á að tengja hverfi borgarinnar betur saman.
  • Eflum vetrarþjónustu fyrir gangandi og hjólandi og ráðumst í sérstakt átak í úrbótum á gangstéttum og innviðum fyrir gangandi.
  • Á meðan Borgarlína byggist upp verður strætó áfram burðarás almenningssamgangna. Höldum áfram að bæta þjónustu strætó með einföldum og markvissum aðgerðum líkt og fleiri forgangsakreinum, betra aðgengi, bættu leiðakerfi og aukinni tíðni um helgar.

3. Vel tengd höfuðborg

Höfuðborgarsvæðið hefur vaxið hratt á síðustu áratugum. Fyrir vikið verður áhrifasvæði þess sífellt stærra og er suðvesturhorn landsins hægt og rólega að verða eitt samverkandi þéttbýlissvæði. Þessi þróun kallar á skýra stefnumörkun í þéttbýlisþróun alls suðvesturhorns landsins og fjárfestingu í fjölbreyttum samgönguinnviðum sem tengja höfuðborgarsvæðið betur við aðliggjandi landshluta.

  • Sundabraut er lykilframkvæmd í að tengja höfuðborgarsvæðið og Vesturland betur saman. Um leið er mikilvægt að útfærsla hennar taki mið af hagsmunum Reykjavíkur og íbúa borgarinnar á áhrifasvæði Sundabrautar. Gæta þarf að góðu samráði við íbúa nærliggjandi hverfa við þróun og vinnslu verkefnisins.
  • Suðurnesin eru fjölmennasta þéttbýlissvæði landsins utan höfuðborgarsvæðisins auk þess að hýsa Keflavíkurflugvöll og fjölbreytta atvinnustarfsemi. Við viljum efla almenningssamgöngur Suðurnesja og Reykjavíkur.
  • Við viljum draga úr óþarfa flugumferð um Reykjavíkurflugvöll með takmörkun á einkaþotum, þyrluflugi og kennsluflugi til að verja öryggi, heilsu og lífsgæði íbúa í grennd.

4. Loftslagsmál snúast um jöfnuð

Loftslags- og umhverfismál eru eitt allra stærsta viðfangsefni okkar tíma og taka þarf mið af þeim við alla ákvarðanatöku borgarinnar.  Loftslagsmál eru í grunninn spurning um jöfnuð, sér í lagi kynslóða. Stefna skal að kolefnishlutleysi 2030 og að heildarlosun borgarinnar dragist saman frá ári til árs með síaukinni grænni fjárfestingu.

  • Byggjum upp borgina á sjálfbæran hátt svo sem flest geti sótt sér þjónustu og atvinnu í sínu nærumhverfi. Stuðlum að sjálfbærari byggingariðnaði.
  • Minnkum áhrif svifryks á heilsu borgarbúa með því að draga úr óþarfa notkun nagladekkja í umferðinni, í samvinnu við ríkið.
  • Styðjum við áform um hátækni sorpbrennslu og raftengingar skemmtiferðaskipa til að minnka kolefnisspor og bæta loftgæði í borginni.
  • Bjóðum upp á meira úrval grænmetisrétta og grænkerafæðis í mötuneytum á vegum borgarinnar, sérstaklega í grunnskólum og leikskólum.