Slagkraftur í húsnæðisuppbyggingu
Betri borg
Húsnæði er undirstaða jafnaðar og mannvænnar borgar. Samfylkingin vill byggja upp húsnæðismarkað þar sem öll geta fundið sér heimili við hæfi, þar sem húsnæðisöryggi er tryggt, meðal annars með óhagnaðardrifinni uppbyggingu. Lykillinn að því er aukið framboð íbúða, en ekki síður fyrirsjáanleiki og jafnvægi sem skapar traust og stöðugleika á markaði til lengri tíma. Það er okkar sýn að uppbygging eigi að styðja við einfalt og gott daglegt líf, þar sem auðvelt er að komast leiðar sinnar og njóta mannlífs og náttúru.
1. Áframhaldandi uppbygging
Við leggjum áherslu á stöðuga og fyrirsjáanlega uppbyggingu, þar sem markmiðið er að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði og mæta raunverulegri þörf borgarbúa.
- Byggjum um 6000 nýjar íbúðir í Reykjavík næstu fjögur árin.
- Leggjum sérstaka áherslu á Ártúnshöfða, Keldnaland og Halla í Úlfarsárdal, þar sem fyrirhuguð er umfangsmikil íbúðauppbygging á næstu árum, auk áframhaldandi þróunar í Elliðaárvogi og Vogabyggð.
- Markviss uppbygging í eldri hverfum, þar sem vannýtt svæði og umbreytingarreitir svo sem í Mjódd og Skeifu, eru nýttir til að bæta við íbúðum á hóflegan hátt. Við leggjum áherslu á fjölbreytta byggð með mannlíf að leiðarljósi, þar sem hverfin eru styrkt án þess að raska einkennum þeirra eða lífsgæðum íbúa.
2. Heimili fyrir öll
- Tryggjum að húsnæðismarkaðurinn þjóni öllum hópum samfélagsins, ekki síst þeim sem hafa takmarkað fé milli handanna. Því leggjum við áherslu á að halda áfram að styðja við metnaðarfulla uppbyggingu óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga.
- Undir óhagnaðardrifið húsnæði falla fjölbreyttar lausnir sem nýtast ólíkum hópum, til dæmis ungu fólki, einstæðum foreldrum, eldra fólki, fötluðu fólki, lágtekjufólki, háskólanemum og þeim sem þurfa á auknum stuðningi að halda. Með þessu er markmiðið að tryggja stöðugleika, öryggi og raunhæfan kost fyrir fleiri að eignast heimili.
- Jafnframt verður áfram lögð áhersla á fjölbreytt búsetuform, svo sem eign, leigu, búseturétt, kjarnasamfélög og fleira, þannig að fólk geti valið það sem hentar best hverju sinni og hafi úr mismunandi kostum að velja á ólíkum æviskeiðum. Jöfnuður á húsnæðismarkaði er forsenda jafnra tækifæra í lífinu.
3. Mannvæn byggð
Uppbygging snýst um að skapa gæði, menningu og öruggt mannlíf. Hún skal taka mið af þörfum íbúa, fjölbreytni í húsagerð og því að hverfi þróist á eðlilegan og aðlaðandi hátt.
- Í uppbyggingu nýrra hverfa leggjum við áherslu á gæði í nærumhverfi og jafnvægi í byggð. Markmiðið er að skapa svæði þar sem fólki líður vel, með fjölgun og góðu aðgengi að grænum svæðum, leiksvæðum og þjónustu.
- Pössum upp á að daglegt líf gangi upp á einfaldan hátt, með góðu aðgengi að þjónustu og skilvirku umferðarflæði, þannig að fólk geti nýtt tímann sinn betur og notið borgarinnar. Við þróum 15 mínútna hverfið af festu þar sem allt sem við þurfum í okkar daglega lífi er innan seilingar.
- Áhersla verður lögð á að efla mannlíf innan hverfa með því að skapa skilyrði fyrir rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja, öflugu menningarlífi og félagsstarfi. Borgin á að iða af lífi í öllum hverfum.