Rúllum út rauða dreglinum fyrir fólk og atvinnulíf

Betri borg

Reykjavík er stærsta atvinnu- og þjónustumiðstöð landsins, með lykilhlutverk í verslun, fjármálum, háskólastarfi, stjórnsýslu og alþjóðlegum tengingum. Borgin er jafnframt atvinnumiðstöð fyrir allt höfuðborgarsvæðið, þar sem þúsundir sækja daglega vinnu. Reykjavíkurborg á að vera í liði með þeim sem vilja byggja upp, þróa og fjárfesta. Við viljum „rúlla út rauða dreglinum“ fyrir fólk og fyrirtæki sem vilja láta gott af sér leiða í borginni.

1. Skilvirk stjórnsýsla og þjónusta

Reykjavík á að vera traustur og áreiðanlegur samstarfsaðili fyrir íbúa og atvinnulíf. Leggjum áherslu á eftirlit í stað flókinna leyfisferla og komum í veg fyrir að verkefni tefjist að óþörfu með skýrum tímamörkum á afgreiðslu mála. Reykjavík á að vera þekkt fyrir jákvætt viðmót, fagmennsku og lausnamiðaða nálgun. Samfylkingin vill vinna markvisst að því að minnka fjarlægðina sem fólk upplifir milli ráðhússins, stjórnsýslu borgarinnar og íbúa.

  • Styttum biðtíma í afgreiðslu erinda, svo sem leyfisveitinga vegna reksturs og framkvæmda á eigin húsnæði, með einfaldari ferlum og skjótari samskiptum. Höldum áfram samstarfi við ríkið um einföldun regluverks.
  • Bjóðum fyrirtækjum einn tiltekinn tengilið við borgina með það að markmiði að stytta boðleiðir og bæta þjónustu.
  • Tryggjum starfsfólki viðeigandi fræðslu, tíma og aðstöðu til að standa undir þeirri ábyrgð sem felst í því að veita góða þjónustu.
  • Hlustum á ábendingar íbúa og lagfærum jafnóðum hnökra í þjónustuveitingu borgarinnar og mælum gæði hennar.
  • Reykjavíkurborg verði áfram leiðandi í stafrænni þróun í þjónustu við íbúa og atvinnulíf.

2. Borg vaxtar og verðmætasköpunar

Reykjavík er atvinnuborg þar sem þekkingariðnaður og skapandi greinar vaxa samhliða sterkum grunni verslunar, þjónustu og iðnaðar. Samfylkingin vill skapa skilyrði fyrir öflugt og fjölbreytt atvinnulíf sem eykur verðmætasköpun, framleiðni og lífsgæði fyrir samfélagið. Borgin á að standast samanburð við fremstu borgir Evrópu þegar kemur að aðstæðum fyrir fyrirtæki og sérfræðinga.

  • Vinnum markvisst að því að auka aðdráttarafl Reykjavíkur fyrir fólk, spennandi hugmyndir og alþjóðleg verkefni.
  • Eflum samstarf háskóla og atvinnulífs með skýrum og hagnýtum verkefnum.
  • Vinnum markvisst að því að bæta aðgengi að athafnasvæðum og tryggja framboð af hentugu atvinnuhúsnæði.
  • Eflum rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja með einfaldara regluverki og skýrum samskiptum við stjórnsýslu.

3. Rekstur og fjármál borgarinnar

Samfylkingin leggur áherslu á góðan og skilvirkan rekstur þar sem hver króna nýtist á sem bestan hátt í þjónustu við íbúa. Mikilvægt er að viðhafa öguð vinnubrögð við gerð áætlana og öflugt eftirlit til að tryggja hagkvæmni í rekstri.

  • Eflum eftirlitshlutverk og ábyrgð kjörinna fulltrúa á fjármálum, fjárfestingum og samningum borgarinnar.
  • Sýnum aga í rekstri með skýrum markmiðum og árangursmælikvörðum í málaflokkum til að ná fram meiri stærðarhagkvæmni.
  • Leitum bestu lausna með stöðugum umbótum og reglulegum rekstrarúttektum á völdum verkefnum og málaflokkum.
  • Borgin nýtur þess að eiga innviðafyrirtæki eins og Orkuveituna og Faxaflóahafnir sem eru bæði samfélagslega mikilvæg og arðbær. Á okkar vakt verða þau aldrei seld úr opinberri eigu.