Gott og gaman að búa í borginni
Betri borg
Samfylkingin ætlar að þróa Reykjavík sem borg þar sem náttúra, menning og öflugt íþróttastarf mætast og skapa einstök lífsgæði. Okkar markmið er að styðja við þá fjölbreyttu sköpunarkrafta sem búa í borginni og tryggja að öll hverfi bjóði upp á lifandi mannlíf og góða aðstöðu til útivistar.
1. Menning og mannlíf um alla borg
Menningin er hjartað í borginni og hún á heima í nærumhverfi fólks. Samfylkingin ætlar að efla menningarlíf í öllum hverfum til að auka þátttöku og efla félagsleg tengsl.
- Styrkjum tónlistarborgina Reykjavík með bættri aðstöðu fyrir tónleikahald og æfingaaðstöðu fyrir hljómsveitir. Í því felst að einfalda leyfiskerfið og bæta alla umgjörð utan um viðburðahald samhliða því að leggja drög að stuðningskerfi við tónlistargeirann að norrænni fyrirmynd.
- Bætum aðstöðu fyrir sviðslistir og skapandi greinar til að styðja við bakið á listafólki borgarinnar.
- Efnum til menningarviðburða um alla borg með því að efla hverfiskjarna sem miðpunkta mannlífs. Styðjum þannig sérstaklega við uppbyggingu samfélagshúsa, bókasafna, kaffihúsa, veitingastaða og smærri reksturs í hverfunum okkar.
2. Borg þar sem er gott að eldast
Við viljum að eldra fólk hafi fjölbreytt tækifæri til að láta til sín taka í samfélaginu og aðgang að stuðningi og þjónustu við hæfi þegar það þarf. Samfylkingin vill auka heimaþjónustu fyrir eldra fólk í samstarfi við ríkið, til að veita ennþá betri samþætta þjónustu inn á heimili ásamt heimahjúkrun og öldrunarráðgjöf.
- Við viljum styðja við þátttöku, virkni og félagslíf eldra fólks í hverfum borgarinnar með aukinni áherslu á heilsueflingu og starfsemi samfélagshúsa og félagsmiðstöðva.
- Við viljum að einn fagðaðili, málstjóri, taki við keflinu þegar þjónustuþörf vex bæði til að létta eldra fólki lífið og veita stuðning til aðstandenda
- Við verðum áfram leiðandi í notkun velferðartækni til að styðja við sjálfstæði eldra fólks, tryggja góða þjónustu við eldra fólk og létta umönnunarbyrði aðstandanda en jafnframt tryggja að fólk geti búið sem lengst heima.
3. Jöfn tækifæri fyrir fatlað fólk
Borgin á að veita aðgengilega, fjölbreytta og góða þjónustu í samráði við notendur sem byggir á virðingu og mannréttindum.
- Við komum til móts við þarfir og óskir fatlaðs fólk með því að standa vörð um áframhaldandi uppbyggingu á húsnæði.
- Við styðjum hugmyndafræði um sjálfstætt líf og munum beita okkur fyrir nægilegu fjármagni frá ríkinu til að styrkja NPA-þjónustuna.
- Bjóðum fötluðu og langveiku fólki störf hjá borginni, með því að fjölga hlutastörfum og tryggja viðeigandi aðlögun í starfi, þannig að Reykjavíkurborg sýni fordæmi á vinnumarkaði.
- Tryggjum að fatlað fólk komist leiðar sinnar, til dæmis með áherslu á að allar almenningssamgöngur verði aðgengilegar.
4. Útivist og borg í tengslum við náttúru
Reykjavík nýtur þess að í borginni mætast náttúra og borgarlíf á einstakan hátt. Samfylkingin vill nýta þau tækifæri til fulls og gera útivist að sjálfsögðum hluta af daglegu lífi fólks allt árið um kring.
- Sundlaugarnar eru okkar mikilvægustu samverurými. Eflum þær með markvissri uppbyggingu, auknu viðhaldi og þjónustu sem mætir þörfum borgarbúa.
- Eflum haftengda upplifun og baðmenningu. Við viljum bæta aðstöðu við strandlengjuna, Ylströndina og aðra staði sem bjóða upp á einstaka upplifun við sjávarsíðuna, meðal annars fyrir siglingar.
- Þróum útivistarsvæði í tengslum við uppbyggingu nýrra hverfa.
- Gerum Austurheiðar að framtíðarútivistarsvæði með því að byggja upp göngu- og fjallahjólreiðastíga ásamt því að bæta aðstöðu til vetraríþrótta líkt og gönguskíða.
- Ljúkum uppbyggingu Vetrargarðsins í Breiðholti sem heilsárs útivistarparadísar fyrir alla fjölskylduna. Höldum áfram uppbyggingu skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
- Fjölgum grænum svæðum og aukum gróður í borgarlandinu, stuðlum að fjölgun borgargarða með fjölbreyttum leiktækjum, bekkjum og hreystiaðstöðu fyrir borgarbúa á öllum aldri. Bætum aðstöðu og þjónustu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
5. Íþróttir og lýðheilsa
Reykjavík styður við öflugt og fjölbreytt íþróttastarf um alla borg. Samfylkingin vill vera liðsfélagi íþróttahreyfingarinnar og tryggja að hún hafi skýra framtíðarsýn og þann stuðning sem þarf til að mæta vaxandi borg.
- Forgangsröðum uppbyggingu og viðhaldi íþróttamannvirkja í öllum hverfum með áherslu á bætta aðstöðu fyrir börn og ungmenni.
- Beitum okkur fyrir því að Þjóðarhöll rísi sem fyrst í Laugardal í samstarfi við ríkið.
- Eflum íþróttafélögin sem lykilaðila í hverfunum þannig að hreyfing og samfélag séu aðgengileg öllum í sínu nærumhverfi.
- Styðjum við fjölbreyttar íþróttagreinar, meðal annars hestamennsku, siglingar, og golf. Byggjum dans- og varnaríþróttahús í Breiðholti, fimleikahús á Höfðanum og styðjum við miðstöð jaðaríþrótta í Toppstöðinni í Elliðaárdal, til að mæta þörfum mismunandi hópa.