Setjum börnin í fyrsta sæti

Samfylkingin setur börn og fjölskyldur í forgang í Reykjavík. Það gerum við með auknum krafti í leikskólamálum, markvissri uppbyggingu í skólakerfinu og skýrri ábyrgð á velferð barna. Við viljum að öllum börnum líði vel, fái að njóta sín og hafi jöfn tækifæri til að þroskast og taka þátt í samfélaginu, óháð bakgrunni eða öðrum félagslegum aðstæðum. Því leggjum við áherslu á samfellda og aðgengilega þjónustu þar sem skóli, velferð og frístundir vinna saman í þágu barnsins.

1. Leikskólar í forgang

Samfylkingin lítur á leikskólann sem fyrsta skólastigið og lykilþjónustu í daglegu lífi fjölskyldna. Öflugt leikskólakerfi er forsenda jafnra tækifæra barna og gerir foreldrum kleift að taka fullan þátt í atvinnu og samfélagi. Þess vegna viljum við að þjónustan verði aðgengileg, áreiðanleg og vönduð.

  • Bætum vinnuaðstæður á leikskólum og setjum 600 milljónir í aukna mönnun og úrbætur á starfsumhverfi.
  • Fjölgum leikskólaplássum um 1500 á kjörtímabilinu í þeim tilgangi að bjóða yngri börnum inn á leikskóla.
  • Hækkum framlag til fjárfestinga í viðhaldi og uppbyggingu leikskólahúsnæðis um 10 milljarða á kjörtímabilinu svo það verði alls 30 milljarðar.
  • Sköpum svigrúm til náms samhliða starfi, meðal annars með námsstyrkjum, til að hvetja starfsfólk leikskóla til að sækja sér viðeigandi menntun.
  • Vinnum með ríkinu að tryggri fjármögnun leikskólastigsins og lögfestingu á rétti barna til leikskólavistar.
  • Stefnum að því að öll börn fái leikskólapláss í leikskóla sem er í fyrsta eða öðru vali forráðamanna þeirra.
  • Tökum upp systkinaforgang þannig að yngra systkini komist inn á sama leikskóla og eldri systkini.
  • Eflum snemmtækan stuðning í leikskólum með því að auka aðgengi að fagaðilum á borð við þroskaþjálfa, sálfræðinga og talmeinafræðinga.
Börn, skóli, Gugga, Reykjavík,

2. Vellíðan og árangur í grunnskólum

Vellíðan og árangur í námi haldast í hendur. Börnum sem líður vel eiga auðveldara með að læra og þegar börn ná árangri eykst öryggi þeirra og sjálfstraust. Samfylkingin vill styðja betur við kennara og skóla í þeirra daglegu starfi. Við leggjum áherslu á inngildingu og fjölbreytileika, þannig að öll börn upplifi sig sem hluta af samfélaginu, óháð bakgrunni eða félagslegri stöðu.

  • Hlúum að geðheilsu nemenda og aukum vellíðan með því að fjölga fagfólki, á borð við sálfræðinga og félagsráðgjafa, inni í skólum. Þannig geta börn og unglingar fengið stuðning strax þegar þau glíma við kvíða, depurð, einmanaleika eða eiga erfitt í samskiptum.
  • Aukum til muna íslenskukennslu barna með annað móðurmál en íslensku til þess að skapa tækifæri og stuðla að jöfnuði.
  • Leggjum áherslu á læsi og stærðfræði, með skýrum markmiðum og gagnreyndum aðferðum sem nýtast í kennslustofunni og skila betri árangri fyrir fleiri nemendur.
  • Setjum 600 milljónir á ári í bættar starfsaðstæður í grunnskólum.
  • Hækkum fjárveitingar til bókakaupa skólabókasafna.
  • Tökum upp skimun í upphafi grunnskólagöngu til að finna snemma þau börn sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda varðandi nám og líðan. Greining er ekki forsenda stuðnings.
  • Eflum menntun unglinga með því að fjölga safnskólum á unglingastigi þar sem stærra og öflugra skólaumhverfi tryggir meiri fjölbreytni í námsframboði og styrkir faglegt starf.
  • Aukum samstarf við háskólasamfélagið um rannsóknir á námi, kennslu og þróun í grunnskólum borgarinnar.

3. Frístundir og forvarnir

Virk þátttaka í frístundum er ein áhrifaríkasta forvörn sem til er. Þegar öll börn fá tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttu og aðgengilegu frístundastarfi styrkjum við bæði líðan þeirra og samfélagið í heild. Við ætlum sérstaklega að ná til þeirra barna sem standa höllum fæti og tryggja að þau taki þátt.

  • Börn og unglingar frá tekjulágum heimilum fái fulla niðurgreiðslu á einni tómstund að eigin vali.
  • Berjumst gegn ofbeldi, einelti og félagslegri einangrun með því að leggja áherslu á fræðslu og samkennd í gegnum félagsmiðstöðvar og frístundastarf.
  • Eflum félagsstarf fyrir 10 til 12 ára börn með skipulögðu starfi í félagsmiðstöðvum.
  • Eflum félagsstarf fyrir 16 til 18 ára ungmenni, meðal annars með auknum opnunum í félagsmiðstöðvum, sundlaugum og íþróttahúsum.
  • Gefum fleiri börnum tækifæri til tónlistarnáms og annars listnáms, fléttum listnám meira inn í daglegt skólastarf nemenda með auknu samstarfi grunnskóla og listaskóla.