Gylfi Þór Gíslason 1. sæti

"Ég brenn fyrir áhuga á að hafa áhrif á þróun mála á Íslandi og berjast fyrir jafnaðarstefnunni."

Nafn: Gylfi Þór Gíslason

Fæðingardagur: 8. Apríl 1963

Starf: Lögregluvarðstjóri, hjá lögreglunni á Vestfjörðum

Heimili: Urðarvegur 49, Ísafirði

"Ég brenn fyrir áhuga á að hafa áhrif á þróun mála á Íslandi og berjast fyrir jafnaðarstefnunni."

---

Ég gef kost á mér í í oddvitasæti á lista Samfylkingarinnar í Norð-vestur kjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar í haust.

Hver er ég!

Ég heiti Gylfi Þór Gíslason f. 8. Apríl 1963 í Reykjavík. Ég er lögregluvarðstjóri hjá lögreglunni á Vestfjöðum. Foreldrar: Gísli Jón Ólafsson, f. 1931 d. 2000 frá Ísafirði og Margrét Berndsen, f. 1927 d. 1986 frá Reykjavík.

Ég hef búið á Ísafirð frá 1997. Kona mín heitir Sóley Veturliðadóttir og er dóttir Sveinfríðar Hávarðardóttur frá Bolungarvík og Veturliða G. Veturliðasonar frá Ísafirði.

Við Sóley eigum tvö börn, Veturliða Snæ f. 1998 og Margréti Ingu f. 2001. Fyrir átti ég dótturina Elsu Rut f. 1989.

Ég gekk til liðs við Alþýðuflokkinn 1978 og frá þeim tíma hef ég tekið þátt í flestum kosningum. Ég sat í stjórn ungra jafnaðarmabnna í 10 ár og í flokkstjórn Alþýðuflokksins í 8 ár.

Ég bíð mig fram núna fyrir komandi Alþingis kosningar af því ég hef alla tíð brunnið fyrir áhuga á stjórnmálum og vil hafa áhrif á gang mála. Eins tek ég undir klisjuna sem er svo mikið notuð nú í dag að lífið er núna.

Það sem ég bý í Ísafjarðarbæ og hef búið þar frá 1997, brennur áhugi minn fyrir betri kjörum á landsbyggðinni.

En á Vestfjörðum er gott að búa, en við sitjum ekki við sama borð í mörgum málum. Má þar nefna sem dæmi í orkumálum. Það var hægt að jafna símkostnað í landinu á einni nóttu í lok síðustu aldar. Ég tel að sé hægt að lækka orkukostnað, hann er ekki náttúrulögmál heldur mannanna verk.

Það á að hækka auðlindgjaldið strax á stærri útgerðir. En til frambúðar þarf að gera breytingar á kerfinu. Það er í stórum dráttum að bjóða út leigukvóta og öllum fiski skuli landað á fiskmarkað.

Það þarf að efla eftirlitsstofnanir í landinu, en á undan förnum árum hefur ýmsu eftirliti verið ábótavant. Eins og kom fram í hruninu Það þarf að endrureisa þjóðhagsstofnun sem dæmi.

Ég vil ekki sjá að afglæpavæða fíkniefnaneyslu í landinu. En það þarf að gera breytingar í þeim málum en ekki með afglæpavæðingu.

Ég vil að Sjálfstæðisflokknum verði gefið frí frá ríkisstjórn eftir næstu kosningar og næstu 2 -3 kjörtímabilin.

Svo eitthvað sé nefnt, en að mörgu er að taka er kemur að stjórn landsmála.

Samfylkingin á að vera bandalag alþýðunnar, flokkur alþýðunnar og berjast fyrir kvennfrelsi.

Áfram til sigurs fyrir jafnaðarstefnuna í landinu!