Sigurður Orri Kristjánsson 1. - 4. sæti

"Ég vil vera í forystusæti hjá Samfylkingunni því ég brenn fyrir því að bæta og verja lífsgæði fólks sem býr í kjördæminu. Þar ber helst að nefna atvinnumál, velferðarmál, samgöngumál og menntamál."

Nafn: Sigurður Orri Kristjánsson

Fæðingardagur: 17. desember 1987

Starf: Ríkisstarfsmaður, íþróttafréttamaður og meistaranemi

Heimili: Meistaravellir 5, 107 Reykjavík

"Ég vil vera í forystusæti hjá Samfylkingunni því ég brenn fyrir því að bæta og verja lífsgæði fólks sem býr í kjördæminu. Þar ber helst að nefna atvinnumál, velferðarmál, samgöngumál og menntamál."

Norðvesturkjördæmi eru mínar heimaslóðir, fyrstu 12 árin bjó ég í Stykkishólmi og næstu 10 ár á Hólmavík. Ég gekk í Menntaskólann á Akureyri og útskrifaðist þaðan með stúdentspróf. Sem stendur bý ég í Reykjavík ásamt sambýliskonu minni, Guðrúnu Lilju Kvaran skjalastjóra.

Ég er 33 ára stjórnmálafræðingur og meistaranemi í tölfræði við HÍ. Ég starfa einnig hjá ríkinu á meðferðarheimili fyrir unglinga, er ritstjóri karfan.is og er körfuboltalýsandi í sjónvarpi fyrir Stöð 2 Sport.

Ég hef starfað við ýmislegt síðustu ár. Til dæmis var ég hótelstjóri í Cannes í Frakklandi, leiðsögumaður, íþróttafréttamaður og skrifstofumaður. Ég var í framkvæmdastjórn Ungra Jafnaðarmanna 2012-2013 og sat einnig í miðstjórn Ungra jafnaðarmanna til 2015. 

Ég skráði mig í Samfylkinguna þegar ég var 16 ára því ég er jafnaðarmaður af lífi og sál. Við eigum að nýta skattkerfið sem bæði tekjuöflun fyrir ríkissjóð sem og jöfnunartæki fyrir samfélagið. Þess vegna er mikilvægt að hafa þrepaskipt skattkerfi. Það er líka kominn tími til þess að skoða að breyta fyrirtækjasköttum þannig að sveitarfélögin fái einhvers konar hlutdeild í þeim skatttekjum.

Staða tekjulægstu hópana, öryrkja, aldraðra og námsmanna er ekki boðleg sem stendur. Það er ekki nóg að ætla að bæta kjörin en svo færast undan í flæmingi þegar kominn er tími á efndir. Samfylkingin verður að vera afl í þágu þeirra sem standa höllustum fæti í okkar samfélagi og gera þeim kleift að taka þátt á eigin forsendum.

Ég styð inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Aðild að myntbandalaginu og upptaka Evru mun hafa mikil og góð áhrif á lífsgæði fólks. Bæði með tilliti til stöðugleika, lánakjara og vaxtastigs.

Nú er tækifæri fyrir Samfylkinguna að uppfæra ásýnd sína. Vera í senn kjölfestuflokkur fyrir jafnaðarmenn úr öllum áttum sem og andlit ákveðins ferskleika um land allt og í kjördæminu. Við eigum að vera flokkurinn sem gerir þeim kleift að flytja í kjördæmið sem vilja starfa þar og byggja upp líf sitt. Það gerum við með því að vera með gott þjónustustig, frábæra skóla og fjölbreytt atvinnulíf. Bæði störf sem eru án staðsetningar sem og störf í geirum á borð við fiskeldi, landbúnað og hefðbundinn sjávarútveg. Þetta verður að sjálfsögðu að vera gert í sátt við umhverfið, en það er ekki hægt að horfa framhjá því hversu mikil lyftistöng fiskeldi hefur verið fyrir samfélögin á sunnanverðum Vestfjörðum.

Ungum frambjóðendum hefur verið treyst í öðrum kjördæmum fyrir sætum ofarlega á lista. Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi ætti að gera slíkt hið sama. Nú er tækifærið.