Fjárhagsáætlun meirihluta í nauðvörn

Árni Rúnar, hafnarfjörður,

Samfylkingin, jafnaðarflokkur Ís­lands vill sjá sterkan Hafnarfjörð þar sem allir íbúar eiga kost á góðri grunnþjónustu og öfl­ugu stuðnings- og velferðar­kerfi.

Árni Rúnar, Hafnarfjörður, kosningar, 2022
Árni Rúnar Þorvaldsson Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði

Jafnaðarfólk vill bæ þar sem bæði ungt fólk og eldra fólk nýtur grunnþjónustu óháð efnahag og við viljum byggja upp framsækið at­­vinnu­líf. Í samræmi við þessi stefnumið okkar lagði Sam­fylkingin fram fjölda tillagna við afgreiðslu fjárhagsáætl­unar 2023 sem voru að fullu fjár­magn­aðar með sérstökum tekju- og hagræð­ingartillögum sem við lögðum fram.

Metnaðarleysi og skortur á framtíðarsýn

Fjárhagsáætlun er mikilvægasta stjórntæki bæjarstjórnar. Þar eru línurnar lagðar fyrir næsta ár og fjár­hagsáætlun býr til ramma sem bæjar­stjórn og starfsfólk sveitarfélagsins verð­ur að starfa innan. Í fjárhagsáætlun birtast áherslur þess meirihluta sem stýrir málum hverju sinni. Nýendur­reistur meirihluti Framsóknar- og Sjálf­stæðisflokks samþykkti fyrstu fjárhags­áætlun sína frá kosningum sl. vor á síðasta bæjarstjórnarfundi. Því miður verður að segjast að metnaður, fram­tíðarsýn og ábyrg fjár­mála­stjórn eru ekki einkennis­merki fjárhagsáætlunarinnar.

Týndu málin

Málefnasamningur meiri­hlutans er rýr í roðinu og fyrsta fjárhagsáætlun hans er af sama meiði. Þar er fátt sem hönd er á festandi, fáar sem engar nýjar hugmyndir um sókn eða endurbætur í velferðarmálum og algjört tómahljóð hvað varðar mál sem hátt hafa farið í umræðunni að undanförnu, einkum fyrir tilverknað Samfylkingar­innar. Ærandi þögn ríkir um stórmál eins og flutning Tækni­skólans í Hafnar­fjörð, nýtt bókasafn í Firði og stór­verkefni Hafnarfjarðar­hafnar í sam­bandi við Carbfix verkefnið sem er risaverkefni í loftslagsmálum. Svo nefnd séu nokkur dæmi um týndu mál þessarar fjárhagsáætlunar.

Pólitísk þröngsýni

Tillögur Samfylkingarinnar hefðu sannarlega orðið til þess að stoppa í göt fjárhagsáætlunar meirihlutans. Því miður varð það ekki raunin því fulltrúar meirihlutans höfnuðu þeim öllum, stórum sem smáum. Um var að ræða fjölbreyttar tillögur líkt og hraðari fjölgun félagslegra íbúða, 500 milljón króna fjárfestingu Hafnarfjarðarhafnar vegna Carbfix verkefnisins, hækkun frístundastyrks og 30 milljón króna framlag til íslenskukennslu fyrir fólk af erlendu bergi brotið í Hafnarfirði auk fjölda annarra. Þessi pólitíska þröngsýni og það metnaðarleysi sem birtist í fjárhagsáætlun meirihlutans sýnir meirihluta í nauðvörn; sex mánuðum eftir kosningar!

Greinin birtist í Fjarðafréttum 21. desember 2022.